Hvolsskóli fékk Íslensku menntaverðlaunin

Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson afhenti þriðjudaginn 3. júní Íslensku menntaverðlaunin 2008 við hátíðlega athöfn í Lágafellsskóla í Mosfellsbæ. Hvolsskóli hlaut verðlaunin í flokki skóla. Nánari umfjöllun um verðlaunin er hér

Nemendur og starfsfólk Hvolsskóla þakka innilega fyrir þennan heiður. Þetta er mikill styrkur og hvatning til að halda áfram þeirri uppbyggingu í átt til einstaklingsmiðunar sem átt hefur sér stað í Hvolsskóla á undanförnum árum.

Á hátíðinni söng Brynja Sif Hlynsdóttir lagið Með þér eftir Bubba Morthens í útsetningu Ingibjargar Erlingsdóttur tónmenntakennara, undirleik önnuðust þau Aníta Þorgerður Tryggvadóttir, Óskar Heiðar Hansson, Eyþór Eiríksson og Elín Björk Sigurjónsdóttir.

Myndir frá athöfninni er hægt að skoða ef smellt er á hópmyndina af verðlaunahöfunum myndirnar tók Erlingur Ó. Aðalsteinsson. Fleiri myndir sem teknar voru á myndavél skólans eru í myndabankanum.