|
|
Fréttir |
||
apríl 2009 4. og 7. bekkur heimsóttu Alviðru og Jarðskjálftamiðstöðina Fimmtudaginn 30. apríl heimsóttu nemendur 4. og 7 bekkjar Rannsóknarmiðstöð Háskóla Íslands í jarðskjálftafræðum á Selfossi. Í sömu ferð var nemendum boðið í Alviðru umhverfisfræðasetur Landverndar. Stefnt er að því að á næstu 4 árum muni allir nemendur skólans hafa fengið viðbótarfræðslu um forvarnir og viðbrögð við jarðskjálftum í Jarðskjálftamiðstöðinni. Myndir frá heimsókninni eru hér og hér. Hvolsskóli endaði í 6. - 7. sæti í Skólahreysti
Þau Bryndís, Guðni, Hjalti og Theodóra bættu árangur sinn í öllum greinum nema einni í úrslitakeppninni í Skólahreysti sem fram fór í Laugardalshöllinni fimmtudaginn 30. apríl. Heiðarskóli sigraði eftir mjög jafna og spennandi keppni þar sem sett voru Íslandsmet í 3 greinum. Þau Hjalti og Theodóra jöfnuðu gamla Íslandsmetið í hraðaþrautinni og aðeins vantaði 5 stig upp á verðlaunasæti í heildarkeppninni. Við óskum íþróttakennurunum og þeim Bryndísi, Guðna, Hjalta og Theodóru innilega til hamingju með árangurinn. Fyrstu og önnur verðlaun í BEST stærðfræðikeppninni
Nemendur 9. bekkjar náðu frábærum árangri í BEST stærðfræðikeppninni sem lauk í Bæjarbíói í Hafnarfirði, miðvikudaginn 22. apríl. Keppnin er tvíþætt, annars vegar vann bekkurinn allur að þemaverkefni um stærðfræðina og umhverfið. Hvolsskóli hlaut fyrstu verðlaun í bekkjarverkefninu, 40.000 kr. Í verkefninu tóku nemendur fyrir gerð Landeyjahafnar og fjölluðu um áhrif þeirra framkvæmda á umhverfið. Hins vegar er keppt í stærðfræðiþrautum. Þar voru 4 umferðir, í fyrstu tveimur umferðunum kepptu allir nemendur bekkjarins, en í undanúrslitum og úrslitum kepptu 4 fulltrúar bekkjarins, þau Brynja S. Hlynsdóttir, Elín Björk Sigurjónsdóttir, Jón Helgi Ingvarsson og Markús J. Dempsey. Með frábærri frammistöðu í undanúrslitunum og glæsilegri kynningu á verkefninu tryggðu þau Hvolsskóla inn í úrslitin. Þrjú lið kepptu svo til úrslita, lið frá Hlíðaskóla í Reykjavík og Giljaskóla á Akureyri auk Hvolsskóla. Lagðar voru 5 þrautir fyrir keppnisliðin og réðust úrslitin í síðustu þrautinni. Okkar lið hafnaði í öðru sæti í stærðfræðiþrautunum eftir að hafa leitt keppnina frá fyrstu þraut að þeirri síðustu. En í síðustu þraut rann úr greipum okkar til Hlíðaskóla keppnisferð til Finnlands. Verðlaun fyrir annað sætið voru 80.000 kr. Við óskum öllum nemendum 9. bekkjar og þeim Ingveldi, Ingvari og Jórunni innilega til hamingju með frábæran árangur. Einnig þökkum við starfsmönnum Suðurverks fyrir þeirra aðstoð við verkefnið.
Verkefnið er til sýnis í skólanum og við hvetjum ykkur til að koma og skoða. Myndir frá undirbúningi og keppninni sjálfri eru komnar í myndabankann.
Kanadískir kennaranemar í Hvolsskóla Mánudaginn 20. apríl voru 9 kanadískir kennaranemar gestir okkar. Nemarnir skiptu sér á stigin og aðstoðuðu við kennsluna. Kennaranemarnir hafa undanfarnar vikur dvalið á Selfossi og tekið hluta af sínu vettvangsnámi þar. Lárus Bragason kennari við FSU hefur verið milligöngumaður um þetta samstarf. Hér eru nokkrar myndir sem teknar voru í náttúrufræðitíma á elsta stigi þar sem kennari kennaranemanna leiðbeinir nemendum Hvolsskóla í tilraun með ljósbrot. Menntamálaráðherra heimsækir Hvolsskóla
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra og föruneyti heimsóttu Hvolsskóla miðvikudaginn 15. apríl. Ráðherra fylgdist með skólastarfinu, ræddi við nemendur og starfsfólk og snæddi að lokum hádegisverð áður en hún hélt til Vestmannaeyja.
Mikið fjör á árshátíð Grunnskólarnir í Rangárþingi og Vestur-Skaftafellssýslu héldu sameiginlega árshátíð í Hvolnum fimmtudaginn 2. apríl. Nemendaráð Hvolsskóla sá um að undirbúa hátíðina undir leiðsögn Jónasar og Lárusar Viðars. Hátíðin tókst í alla staði mjög vel og skemmtu nemendur og starfsmenn sér konunglega. Hver skóli sá um að koma með skemmtiatriði og hljómsveitin Dalton spilaði fyrir dansi. Ef þú smellir á myndina birtast fleiri myndir af árshátíðinni. mars 2009 Guðmunda og Guðlaug í skólaráð Á foreldradegi 13. mars kusu foreldrar fulltrúa í skólaráð Hvolsskóla. Þær Guðmunda Þorsteinsdóttir Hvolsvelli og Guðlaug B. Guðlaugsdóttir Voðmúlastöðum hlutu kosningu í ráðið báðar með 52 atkvæði. Varamenn eru þær Berglind Bjarnadóttir Hrútafelli og Katrín Birna Viðarsdóttir Ásólfsskála. Foreldrar ánægðir með skólastarfið Í könnun sem lögð var fyrir foreldra á foreldradegi 13. mars síðastliðinn kemur fram mikil ánægja með skólastarfið í Hvolsskóla. Yfir 90% þeirra sem þátt tóku í könnuninni svara flestum spurningum um skólastarfið á jákvæðan hátt og 98 % þeirra finnst viðmót kennara skólans mjög eða frekar þægilegt. Nánar um niðurstöður má sjá hér. Margar góðar ábendingar komu fram og munum við nota niðurstöðurnar við áframhaldandi uppbyggingu á skólastarfinu. Leikhúsferð Eins og flestum er kunnugt fjölmenntum við á Kardemommubæinn í Þjóðleikhúsinu sunnudaginn 29. mars. Ríflega 220 manns fóru á sýninguna og tókst ferðin í alla staði vel. Var á sýningargestum að heyra að öllum líkaði vel að skyggnast inn í líf íbúa Kardemommubæjar. Myndir úr ferðinni eru hér.
BEST keppendur skoða framkvæmdir
Nemendur 9. bekkjar tóku sér ferð á hendur og skoðuðu framkvæmdir á Seljalands og Hamragarðaheiði og í Bakkafjöru vegna Landeyjahafnar. Þeir eru nú að leggja lokahönd á þemaverkefnið sitt stærðfræðin og umhverfið, en það fjallar einmitt um framkvæmdirnar og áhrif þeirra á umhverfið. Fulltrúar bekkjarins munu halda kynningu á verkefninu og keppa í undanúrslitum BEST keppninnar sem fram fer í Hafnarfirði dagna 21. og 22. apríl. Hér eru myndir úr ferðinni Blástursbelgirnir spiluðu í Hvolsskóla Miðvikudaginn 25. mars fengum við Blástursbelgina í heimsókn á vegum verkefnisins Tónlist fyrir alla. En Blástursbelgirnir eru hjón sem koma frá Bolungarvík. Þau spiluðu fyrir nemendur og kynntu fyrir þeim ýmis hljóðfæri sem mynda hljóð með lofti.Við þökkum góða heimsókn. Hvolsskóli sigraði í Skólahlaupi HSK 24 nemendur af öllum stigum Hvolsskóla tóku í dag þriðjudag þátt í keppninni Skólahlaup HSK, Fjör í frjálsum. Krakkarnir gerðu sér lítið fyrir og sigruðu í heildarkeppninni. Nemendur yngsta stigs og miðstigs hrepptu gullverðlaun í sínum flokkum og nemendur elsta stigs silfurverðlaun. Við óskum íþróttakennurum og öllum keppendum til hamingju með árangurinn. Nánar um úrslit og myndir frá keppninni birtast á heimasíðu HSK. Katrín varð önnur í Stóru upplestrarkeppninni
Katrín Rúnarsdóttir náði öðru sæti á lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar sem fram fór á Kirkubæjarklaustri í gær, mánudaginn 23. mars. Katrín og Eygló Arna voru okkar fulltrúar í keppninni og stóðu þær sig báðar frábærlega og óskum við þeim innilega til hamingju með árangurinn. Hópur nemenda úr 7. bekk tók þátt í ferðalaginu á Klaustur og tókst ferðin í alla staði mjög vel. Hér má sjá myndir úr ferðinni. Skólabúðir og skíðaferðalög Nemendur 5. - 10. bekkjar hafa nú allir lokið skíðaferðum og tókust þær allar mjög vel. Myndir úr ferðunum eru í myndabankanum. Nemendur 7. bekkjar áttu viðburðaríka daga í Skólabúðunum á Reykjum vikuna 2. - 6. mars. Hér birtast myndir úr skólabúðunum og greinilegt er að þar hefur verið líf og fjör. Eygló Arna og Katrín sigruðu í undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar
Þökkum þátttöku í könnun Við þökkum öllum foreldrum sem gáfu sér tíma og svöruðu spurningakönnun varðandi skólastarfið á foreldradaginn. Niðurstöður úr könnuninni munu birtast á síðunni næstu daga. Gestir og þakkir fyrir góðar gjafir
Undanfarnar vikur hafa margir góðir gestir heimsótt Hvolsskóla. Hingað hafa m.a. komið fjölmennir hópar skólastjórnenda af Reykjanesi, kennara úr Hafnarfirði og frá Höfn í Hornafirði. Fulltrúar nemenda í nemendaráði skólans hafa tekið virkan þátt í móttöku gestanna og aðstoðað við að sýna skólann. Á myndinni eru þær Elísabet Rún úr 10. bekk og Fanney úr 9. bekk með gjafir sem Reyknesingar gáfu nemendum Hvolsskóla sem þakklæti fyrir góða leiðsögn. Hvolsskóli í úrslit í Skólahreysti Fimmtudaginn 5. mars tók Hvolsskóli þátt í Skólahreysti sem er hreystikeppni milli grunnskóla á öllu landinu. Hvolsskóli náði þeim glæsilega árangri að vinna sinn riðil en í honum voru fulltrúar frá sjö skólum á Suðurlandi. Hvolsskóli er því komin í úrslit annað árið í röð. Fulltrúar Hvolsskóla í keppninni voru Theodóra Jóna Guðnadóttir, Bryndís Sigríksdóttir, Guðni Sigþór Ragnarsson og Hjalti Kristinsson. Upptökur frá keppninni verða sýndar í þættinum Skólahreysti á RÚV á næstunni. Meira um keppnina á skolahreysti.is Heimsókn í Kardimommubæ framundan Kardimommubærinn hefur ennþá mikið aðdráttarafl því metþátttaka er í leikhúsferð yngsta og miðstigs næstkomandi sunnudag. Við minnum á mikilvægi þess að standa við skráningar í rútu því fjöldi sæta er pantaður í samræmi við skráningar. Nánari upplýsingar vegna ferðarinnar eru hér. Starfsdagur og foreldradagur Fimmtudaginn 12. mars er starfsdagur. Þá mætir starfsfólk til vinnu kl. 8.15 en kennsla fellur niður og er því frí hjá nemendum. Föstudaginn 13. mars er svo foreldradagur. Nemendur hafa fengið miða þar sem fram kemur hvenær mæta eigi í foreldraviðtal. Ef tíminn hentar ekki eru foreldrar beðnir að hafa samband við viðkomandi umsjónarkennara sem mun úthluta nýjum tíma. Á föstudaginn verður líka kosning fulltrúa foreldra í skólaráð og könnun sem foreldrar eru beðnir að svara. Minnum á kaffisölu á foreldradaginn til styrktar ferðasjóði 10. bekkjar. febrúar 2009
Skemmtilegur skóladagur með forsetahjónunum
Forseti Íslands hr. Ólafur Ragnar Grímsson og frú Dorrit Moussaief forsetafrú heimsóttu okkur í Hvolsskóla miðvikudaginn 11. febrúar ásamt fulltrúum frá Sparisjóðunum á Íslandi. Gestirnir voru komnir í skólann stundvíslega kl. 9:00 og fylgdust með starfi nemenda á stigum til kl. 11:00. Kl. 11:00 var athöfn á sal með öllum nemendum og starfsfólki, þar sungu nemendur yngsta og miðstigs íslensk lög fyrir forsetahjónin, hljómsveitin Bad Karma flutti lagið Dani California og Elísabet Rún Ágústsdóttir flutti ræðuna sína frá ræðukeppninni. Hr. Ólafur Ragnar ávarpaði nemendur og gaf nemendum síðan tækifæri til að spyrja. Að lokum snæddu gestirnir hádegisverð með nemendum. Myndir frá heimsókninni eru hér og hér. Myndirnar tók Þorgeir Sigurðsson nemandi í 10. bekk. Frétt um heimsóknina á mbl.is og á ruv.is 9. bekkur í undanúrslitum í BEST Nemendur 9. bekkjar eru komnir í undanúrslit í BEST stærðfræðikeppninni (áður Kapp Abel). í undanúrslitunum sem fram fara í Hafnarfirði 21. og 22. apríl keppa 11 bekkir víðs vegar að af landinu. Meginviðfangsefni keppninnar að þessu sinni er þemaverkefni um stærðfræðina og umhverfið. Við óskum nemendum 9. bekkjar til hamingju með árangurinn. Lýðheilsuátaki að ljúka - nemendur 7. bekkjar fengu senda ávaxtakörfu. Nú er lýðheisluátakinu í Hvolsskóla að ljúka en undanfarnar 6 vikur hafa nemendur og starfsfólk einbeitt sér að hreyfingu og hollustu. Hvert stig tileinkaði starfið átakinu í tvær vikur og var skipulega farið í útivist og hreyfingu samhliða fræðslu og verkefnavinnu. Ólöf hjúkrunarfræðingur flutti fyrirlestra á öllum stigum.
Þjóðlegur fróðleikur á baðstofuhátíð miðstigs
Nemendur á miðstigi buðu upp á glæsilega baðstofuhátíð í Hvolsskóla á sprengidag. Í tilefni af 100 ára afmæli Hvolsskóla settu nemendur upp sýningu þar sem lögð var áhersla á að skapa baðstofustemmingu og til skemmtunar var m.a. dans, söngur, leikur og glíma. Á borðum var þorrasnakk í boði okkar góðu vina í Sláturfélagi Suðurlands, ásamt harðfiski og hákarli og öllu mátti skola niður með mysu. Lýðheilsuátak Næstu vikur ætlum við að huga að lýðheilsu í skólanum. Miðstigið ríður á vaðið og tekur sérstaklega fyrir mataræði og hreyfingu vikurnar 19. - 30. janúar. Nemendur og starfsfólk munu halda dagbók, fá fræðsluerindi og unnin verða ýmis verkefni sem tengjast lýðheilsu. Yngsta stigið tekur svo við vikurnar 2. - 13. febrúar og elsta stigið lokar verkefninu 16. - 27. febrúar. Albert fljótastur að reikna Í tilefni af Degi stærðfræðinnar föstudaginn 6. febrúar var haldin keppni í margföldun á elsta stigi. Albert Rútsson úr 9. bekk hafði þar vinninginn og fékk í verðlaun vasareikni. Með honum á myndinni er Birgitta Bjarnadóttir sem hafnaði í öðru sæti.
Forseti Íslands væntanlegur Forseti Íslands og frú ásamt föruneyti munu heimsækja Hvolsskóla miðvikudaginn 11. febrúar. Áætlaður komutími er kl. 9:00. Gestirnir dvelja í Hvolsskóla fram yfir hádegi. Hvolsskóli vann 3 bikara af 4 Grunnskólamót HSK í glímu var haldið á Hvolsvelli miðvikudaginn 4. febrúar. Keppt var um 4 bikara á þessu móti og unnu nemendur Hvolsskóla 3 þeirra og Laugalandsskóli 1. Alls tóku þátt 86 keppendur frá 5 skólum á Suðurlandi. Úrslit og myndir frá mótinu má finna á heimasíðu hsk. Glæsileg ræðu- og söngkeppni Ræðu- og söngkeppni skólanna í Rangárþingi fór fram á Laugalandi fimmtudaginn 5. febrúar síðastliðinn. Ræðumenn Hvolsskóla voru þau Kristbergur Ómar og Elísabet Rún. Í söngkeppninni kepptu þau Albert Rútsson og Andrea Guðlaugsdóttir. Eftir harða keppni urðu Lauglendingar hlutskarpastir bæði í ræðu og söngkeppninni. Fulltrúar Hvolsskóla stóðu sig með mikilli prýði og er það mál manna sem að þessari keppni koma að hún verði betri með hverju árinu. Myndir frá keppninni eru komnar í myndabankann. janúar 2009 Ræðulið Hvolsskóla
Þau Kristbergur Ómar, Sara, Ástrún Svala og Elísabet Rún urðu hlutskörpust í ræðukeppni Hvolsskóla sem fram fór þriðjudaginn 27. janúar. Fjórmenningarnir undirbúa sig nú af kappi fyrir ræðukeppni skólanna í Rangárþingi sem fram fer á Laugalandi fimmtudaginn 5. febrúar næstkomandi. Myndir frá keppninni eru komnar í myndabankann. Ræðukeppni Hvolsskóla Ræðukeppni elsta stigs Hvolsskóla fer fram í sal skólans þriðjudaginn 27. janúar kl. 8:30. Þá þreyta keppni sigurvegarar úr undankeppni sem fram fer í bekkjunum vikuna 19. - 23. janúar. Ræðuefnið að þessu sinni er mótmæli. Nemendur eiga að taka afstöðu til friðsamlegra mótmæla, ófriðsamlegra mótmæla eða því að mótmæla ekki. Sigurvegarar í ræðukeppni Hvolsskóla verða svo fulltrúar skólans í árlegri ræðukeppni skólanna í Rangárþingi. BEST Nemendur 9. bekkjar Hvolsskóla undirbúa sig nú undir 2. umferð í BEST-stærðfræðikeppninni (áður KappAbel). Fyrri umferðin fór fram í nóvember og kom bekkurinn út úr þeirri umferð með fullt hús stiga. 2. umferð fer fram þriðjudaginn 20. janúar og í framhaldi af því fer af stað vinna við þemaverkefnið Stærðfræðin og umhverfið. Skráning í skólabíla Allt starf er nú að komast í fullan gang á nýju ári og mörg spennandi verkefni eru framundan. Við erum í óðaönn að uppfæra áætlanir og munu þær birtast á síðunni næstu daga. Starfið í verkefninu samþætting tómstunda og skólastarfs fór af stað mánudaginn 12. janúar. Við minnum á skráningu í skólabíla, allir sem nota skólabíla eiga að skila inn skráningarblöðum. Eyðublöð voru send heim með nemendum, í tölvupósti og einnig er hægt að nálgast þau hér á síðunni. desember 2008 Viðburðaríkur desember í Hvolsskóla Snjórinn kyngir niður og skapar jólastemningu í dag 19. desember á lokadegi haustannar. Nemendur og starfsfólk skólans hafa nú í desember gert ýmislegt til þess að gæða námið lífi og lyfta huganum í skammdeginu. Myndin er tekin á lokaæfigu fyrir árshátíð yngsta stigs en gestir á henni voru nemendur úr Leikskólanum Örk og nemendur af miðstigi Hvolsskóla. Fleiri myndir frá undirbúningnum birtast ef þú smellir á myndina. Göngum við í kringum einiberjarunn Dagskráin sem nemendur og starfsfólk yngsta stigs buðu upp á í fyrstu viku desember kallaði fram ljúfar minningar hjá foreldrum, öfum og ömmum. Í tilefni af 100 ára afmæli skólans settu nemendur á skemmtilegan hátt upp jólaball frá fyrri hluta síðustu aldar. Að loknum flutningi á jólakvæðum og jólasögum var dansað í kringum heimatilbúið jólatré sem skreytt var með logandi kertum og einberjalyngi. Föndrað, spjallað og notið góðra veitinga Foreldrafélag Hvolsskóla stóð fyrir hinu árlega jólaföndri sunnudaginn 23. nóvember. Fjölmargar fjölskyldur nýttu tækifærið og föndruðu saman í skammdeginu. Í tilefni af 100 ára afmæli Hvolsskóla bauð félagið upp á kakó og vöfflur. Hér eru nokkrar myndir sem Þórunn Óskarsdóttir tók á jólaföndrinu og gleðin leynir sér ekki í hverju andliti. nóvember 2008 Gjöf frá skógræktinni Hvolsskóla barst á dögunum glæsileg gjöf frá Skógræktinni að Tumastöðum í tilefni af 100 ára afmæli skólans. Var um að ræða 30 birkiplöntur sem nemendur á miðstigi hafa þegar komið fyrir í Skólaskóginum. Munu þær veita kærkomið skjól fyrir norðan- og vestanáttinni sem getur á stundum verið köld. Þökkum við Skógræktinni kærlega fyrir veglega gjöf. Skemmtilegur dagur Nemendur 10. bekkjar lásu Njálu í tilefni af Degi íslenskrar tungu mánudaginn 17. nóvember. Elvar Eyvindsson formaður skólanefndar Hvolsskóla opnaði dagskrána með ávarpi kl. 7:30. Síðan hófst lesturinn á Brennu-Njálssögu sem lauk kl. 21:30. Fjölmargir nemendur úr öðrum bekkjum tróðu upp með tónlistaratriðum og upplestri. Forvarnardagur 6. nóvember var forvarnardagur í grunnskólum landsins. Nemendur 9. bekkjar fengu þá í heimsókn góða gesti frá lögreglunni, félagsmiðstöðinni og Íþróttafélaginu Dímon. Unnin var verkefnavinna sem skipulögð er af forsetaembættinu. Nánari upplýsingar um verkefni Forvarnardagsins eru á heimasíðunni forvarnardagur.is Íþróttahátíð, First Lego Leage keppni og fleira Sameiginleg íþróttahátíð Hvolsskóla, Helluskóla og Laugalandsskóla fór fram miðvikudaginn 5. nóv. Keppt var í körfubolta, brennibolta og boðhlaupi. Nemendur Hvolsskóla sigruðu í öllum greinum sem keppt var í. Hvolsskóli tók um síðustu helgi þátt í First Lego Leage keppninni en keppt var í smíði og þrautum á tölvustýrðu Lego vélmenni. Einnig unnu nemendur rannsóknarverkefni um breytingar á veðurfari. Veitt voru verðlaun fyrir ýmis atriði og var Brynja Hlynsdóttir á meðal fimm efstu í keppninni um besta skemmtiatriðið. Alls voru 23 skólar skráðir í keppnina og sigurvegararnir voru frá Höfn í Hornafirði. Nánari upplýsingar um keppnina er að finna hér. Undankeppni söngkeppni SAMFÉS á Suðurlandi fór fram á Selfossi á laugardaginn. Andrea Guðlaugsdóttir var okkar fulltrúi í þeirri keppni að þessu sinni. Með henni spiluðu þeir Eyþór Eiríksson, Óskar Hansson og Jón Helgi Ingvarsson. Jólaföndur Foreldrafélags Hvolsskóla Foreldrafélag Hvolsskóla stendur fyrir hinu árlega jólaföndri sunnudaginn 23. nóvember kl. 14 - 17. Ýmislegt föndur er í boði svo allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Tækifæri fyrir fjölskyldur að koma saman og föndra í skammdeginu. Í tilefni af 100 ára afmæli Hvolsskóla ætlar félagið að bjóða upp á kakó og vöfflur. Nánar upplýsingar um jólaföndrið hér. Hið árlega fréttabréf Foreldrafélagsins hér. Upplestur á Njálu mánudaginn 17. nóv Nemendur 10. bekkjar undirbúa nú af kappi upplestur á Njálu í tilefni af Degi íslenskrar tungu sem að nú ber upp á sunnudaginn 16. nóvember. Dagskráin hér í skólanum verður mánudaginn 17. nóvember og hefst kl. 7:30 að morgni með því að Elvar Eyvindsson formaður skólanefndar Hvolsskóla setur samkomuna. Síðan hefst leiklestur á Brennu-Njálssögu sem stendur yfir til kl. 20:30. október 2008 Vel heppnuð afmælishátíð Fjölmenni mætti á afmælishátíðina okkar föstudaginn 31. okt og tókst hátíðin í alla staði mjög vel. Sýning nemenda var vel heppnuð og gerðu gestir góðan róm að.
Skemmtilegur afmælisdagur að baki Fyrir 100 árum síðan þann 10. október 1908 var Barnaskóli Hvolhrepps settur í fyrsta skipti að Stórólfshvoli. Afmælisdagurinn heilsaði okkur með góðu veðri. Áður en lagt var upp í göngu hlýddu nemendur á Smára Guðlaugsson, Mörtu Arngrímsdóttur, Ingvar Þorsteinsson og Ragnhildi Lárusdóttur sem öll gengu í skólann frá heimabæjum sínum. Síðan gengu nemendur foreldrar og starfsfólk gamlar gönguleiðir frá völdum bæjum í Hvolhreppi og að lokinni göngunni var snæddur hádegisverður í Skólaskóginum. Elvar Eyvindsson starfandi sveitarstjóri afhenti formlega útikennslustofuna sem sveitarstjórn ákvað að gefa skólanum í afmælisgjöf, foreldrar aðstoðuðu við að reiða fram pylsur og langborgara sem Sláturfélag Suðurlands gaf og að lokum var boðið upp á heitt kakó og rjóma í sal skólans. Við þökkum öllum þeim sem gerðu þennan dag svo skemmtilegan sem raun bar vitni með aðstoð og þátttöku. Næsti viðburður sem tengist 100 ára afmælinu verða þemadagar nemenda í lok október og afmælishátíð föstudaginn 31. október. Fleira um 100 ára afmælið hér. Myndir eru væntanlegar í myndabankann. Moltukassinn tæmdur í fyrsta sinn Þeir Viðar Gauti, Leon Logi og Marinó létu hendur standa fram úr ermum þegar þeir aðstoðuðu Þorstein i Steinasteini við að tæma moltukassann i fyrsta sinn miðvikudaginn 8. október. Efnið úr kassanum var notað við gróðursetningu á grenitré sem stendur við útisviðið austan við salinn.
Aðalfundur Foreldrafélagsins Aðalfundur Foreldrafélags Hvolsskóla var haldinn í sal skólans fimmtudaginn 2. október síðastliðinn. Fyrsti dansleikur vetrarins Nemendur 8. - 10. bekkjar halda fyrsta dansleik vetrarins í Goðalandi miðvikudaginn 8. október. Hljómsveitin Veðurguðirnir leikur fyrir dansi. Dansleikurinn er haldinn í samstarfi við Laugalandsskóla, Helluskóla og Grunnskólann í Vík en nemendaráð Hvolsskóla sér um undirbúning. Hvolsskóli 100 ára - Þemadagar og Við höldum áfram að gera okkur glaðan dag vegna 100 ára afmælis Hvolsskóla og næstu tvær vikur mun skólastarfið snúast að mestu leyti um afmælið. Þemadagar verða fimmtudaginn 23.okt., föstudaginn 24. okt., miðvikudaginn 29.okt og fimmtudaginn 30.október. 100 ára skólastarfi hefur verið skipt upp í 3 tímabil og skoðar hvert stig eitt tímabil. Nemendur miðstigs afla upplýsinga um starfið í Barnaskóla Hvolhrepps árin 1908 - 1950, elsta stigið skoðar sérstaklega skólaárin 1950 -1980 og yngsta stigið einbeitir sér að Hvolsskóla skólaárin 1980 - 2008. Á þemadögum er starf með nemendum til kl. 13:00. Kosningum í nemendaráð lokið Nemendaráð Hvolsskóla er skipað fulltrúum nemenda úr 7. - 10. bekk. Kosningu er nú lokið í öllum aldurshópum. Formaður nemendaráðs er Karitas Ágústsdóttir og varaformaður er Kristbergur Ómar Steinarsson. Aðrir fulltrúar eru Elísabet Rún Ágústsdóttir 10. bekk, Fanney Úlfarsdóttir 9. bekk, Eyþór Eiríksson úr 8. bekk og Katrín Rúnarsdóttir úr 7. bekk. Til vara eru Hjalti Kristinsson 10. bekk, Albert Rútsson 9. bekk, Kári Benónýsson og Ívar Máni Garðarsson úr 7. bekk. Frætínsluferð yngsta stigs var fimmtudaginn 2. okt Yngsta stigið fór í frætínsluferð fimmtudaginn 2. okt. Ferðin var skipulögð í samstarfi við Landgræðsluna í Gunnarsholti. Myndir úr ferðinni eru hér. Samkeppni um afmælismerki Afmælisnefnd Hvolsskóla hefur ákveðið að efna til samkeppni um merki í tilefni af 100 ára afmæli skólans.
september 2008 Afmælisnefnd skipuð Í vikunni var skipað í afmælisnefnd vegna 100 ára afmælis Hvolsskóla. Í nefndinni eru ásamt stjórnendum Auður Fr. Halldórsdóttir, Gyða Björgvinsdóttir, Jón Stefánsson, Sigrún Jónsdóttir, Kristín Leifsdóttir, Guðmunda Þorsteinsdóttir fulltrúi foreldra, formaður og varaformaður nemendaráðs verða fulltrúar nemenda. Hlutverk nefndarinnar er að fjalla um og koma með tillögur að dagskrá á afmælisárinu. Nefndin hélt sinn fyrsta fund fimmtudaginn 19. sept. og verður næsti fundur eftir tvær vikur. Af fundum og fleiru Nú er 3. vikan liðin og skólastarfið komið í fullan gang. Kynningarfundir fyrir foreldra voru vel sóttir og umhverfisnefnd Hvolsskóla hélt sinn fyrsta fund á skólaárinu fimmtudaginn 11. september. Nemendur miðstigs söfnuðu fræjum í Landeyjafjöru og í vikunni skoðuðu nemendur fornbíla frá ýmsum löndum sem hér áðu á leið sinni um landið.Nýjar myndir úr starfinu eru í myndabankanum. Sultað og saftað á miðstigi Miklar annir hafa verið hjá nemendum og starfsfólki á miðstigi nú fyrstu dagana en þau leiða okkur áfram í verkefninu Hvolsskóli á grænni grein. Í síðustu viku var farið í berjaferð í Merkurnes og daginn eftir var útbúin sulta og saft. Verið er að setja upp útikennslustofu í Skólaskóginum í Vellinum og fengu nemendur aðstoð í síðustu viku frá Veraldarvinum við að koma upp skýli við stofuna. Á föstudaginn býður Landgræðslan nemendum miðstigs í fræðsluferð í fjöru við Hallgeirsey og nemendur munu tína fræ af baunagrasi. Þriðjudaginn 16. september er svo árleg réttarferð miðstigsins, en þá verður skundað í Fljótshlíðarréttir. Myndir af starfsfólki miðstigs ásamt Sigurði húsverði að reisa skýlið. Haustþing kennara föstudaginn 26. sept Engin kennsla verður í Hvolsskóla föstudaginn 26. sept og kennt verður til kl. 13:00 fimmtudaignn 25. sept. Kennarafélag Suðurlands er með árlegt haustþing að þessu sinni í Hveragerði. Skjólið verður opið á fimmtudag en lokað á föstudag. Íþróttastarf á vegum Dímonar og KFR fellur niður fimmtudag og föstudag. Kosningar í nemendaráð Þessa dagana standa yfir kosningar í nemendaráð Hvolsskóla en nemendaráð er skipað fulltrúum nemenda úr 7. - 10. bekk. Kosningu er lokið í 3 aldurshópum. Aðalfulltrúar eru Elísabet Rún Ágústsdóttir 10. bekk, Fanney Úlfarsdóttir 9. bekk og Katrín Rúnarsdóttir úr 7. bekk. Til vara eru Hjalti Kristinsson 10. bekk, Albert Rútsson 9. bekk og Ívar Máni Garðarsson úr 7. bekk. Í næstu viku er áformað að kjósa formann og varaformann ásamt fulltrúa 8. bekkjar. En 8. bekkur kemur heim úr ferð um Snæfellsnes í dag, föstudag. Framundan Nemendur yngsta stigs fara á þriðjudaginn í Bolholt að tína birkifræ, þann sama dag fara nemendur miðstigs í Fljótshlíðarréttir og miðvikudaginn 17. september leggja nemendur 8. bekkjar af stað í ferð á Snæfellsnes. ágúst 2008 Upphaf skólaársins Kennsla er hafin á ný og nemendur og kennarar takast á við verkefni sín af miklum krafti. Mörg skemmtileg viðfangsefni bíða okkar handan við hornið. Námslýsingar hafa verið uppfærðar á heimasíðunni, matseðill og starfsáætlun eru uppfærð mánaðarlega. Í 2. viku september er boðað til kynningarfunda á öllum stigum. Nemendur 7. - 10. bekkjar fóru heim með valblöð í dag og eiga að skila þeim inn til umsjónarkennara í síðasta lagi fimmtudaginn 28. ágúst. Lýsingar á valáföngum eru á heimasíðunni undir flipanum námsvísar.
júní 2008 Hvolsskóli fékk Íslensku menntaverðlaunin Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson afhenti þriðjudaginn 3. júní Íslensku menntaverðlaunin 2008 við hátíðlega athöfn í Lágafellsskóla í Mosfellsbæ. Hvolsskóli hlaut verðlaunin í flokki skóla. Nánari umfjöllun um verðlaunin er hér Nemendur og starfsfólk Hvolsskóla þakka innilega fyrir þennan heiður. Þetta er mikill styrkur og hvatning til að halda áfram þeirri uppbyggingu í átt til einstaklingsmiðunar sem átt hefur sér stað í Hvolsskóla á undanförnum árum.
Á hátíðinni söng Brynja Sif Hlynsdóttir lagið Með þér eftir Bubba Morthens í útsetningu Ingibjargar Erlingsdóttur tónmenntakennara, undirleik önnuðust þau Aníta Þorgerður Tryggvadóttir, Óskar Heiðar Hansson, Eyþór Eiríksson og Elín Björk Sigurjónsdóttir. Myndir frá athöfninni er hægt að skoða ef smellt er á hópmyndina af verðlaunahöfunum myndirnar tók Erlingur Ó. Aðalsteinsson. Fleiri myndir sem teknar voru á myndavél skólans eru í myndabankanum.
maí 2008 Skólaslit Skólaslit Hvolsskóla fóru fram að viðstöddu fjölmenni í Íþróttamiðstöðinni föstudaginn 30. maí kl. 16:00. Að þessu sinni útskrifaðist 21 nemandi frá Hvolsskóla 19 10. bekkingar og 2 úr 9. bekk. Við óskum öllum nemendum til hamingju með árangur vetrarins og óskum þeim velfarnaðar í sumar. Foreldrum þökkum við frábært samstarf. Einnig þökkum við þeim fjölmörgu einstaklingum og fyrirtækjum sem styðja skólastarfið fyrir gott samstarf í vetur. Á meðfylgjandi mynd eru verðlaunahafar vetrarins. Myndir frá skólaslitunum ásamt myndum flá fleiri viðburðum í maí eru í myndabankanum. Danmerkurferð í myndum Eins og fram hefur komið þá fóru nemendur 10. bekkjar, umsjónarkennarar þeirra og nokkrir fulltrúar foreldra í skólaferðalag til Danmerkur. Ferðin stóð í fjóra daga og heppnaðist vel. Myndir eru inni í myndabankanum. Góður fundur um skólastarfið á yngsta stigi Kennarar á yngsta stigi boðuðu foreldra til fundar fimmtudaginn 22. maí. Á fundinum var farið yfir helstu þætti í starfi stigsins og foreldrum gafst kostur á að koma með ábendingar og fyrirspurnir. Fundir sem þessir eru mjög mikilvægir fyrir okkur og mikilvægur þáttur í að gera gott skólastarf enn betra. Myndir frá fundinum eru hér. Prófum lokið Nú er prófum lokið og nemendur fást þessa dagana við viðfangsefni sem tilheyra þessum árstíma. Nemendur 7. og 8. bekkjar gengu í gær (mánudag 26. maí) á Þríhyrning, nemendur 9. bekkjar fóru í þrautir við Stóra-Dímon og nemendur annarra bekkja skoðuðu sveitirnar undir Eyjafjöllum. Þetta var viðburðaríkur dagur og bros á hverju andliti í lok dagsins. Í síðustu viku dvöldu nemendur 10. bekkjar í Kaupmannahöfn. Ann-Sofie var umsjónarkennurum til aðstoðar við skipulagningu ferðarinnar. Ferðin gekk í alla staði mjög vel. Vel heppnuð vorhátíð Nemendur og starfsfólk Hvolsskóla efndu til vorhátíðar föstudaginn 16. maí í samvinnu við Foreldrafélag Hvolsskóla. Á hátíðinni sýndu nemendur dans og afrakstur viðfangsefna úr þemavikunni. Tónlistarmenn skólans tróðu upp á útisviði og fulltrúar Foreldrafélagsins buðu upp á andlitsmálun, seldu veislukaffi í salnum og grillaðar pylsur og kók úti. Forskólanemendur Tónlistarskólans héldu lokatónleika sína í salnum. Nemendur Hvolsskóla heimsækja og fá heimsóknir Í umferðarvikunni (12. - 15. maí) heimsóttu allir nemendur 1. - 8. bekkjar Frumherja bílaskoðunarstöð og fengu góðar móttökur. Einnig hafa nokkrir nemendur litið við á fleiri stöðum sem tengjast umferðinni. Lögreglan hefur aðstoðað okkur mikið undanfarnar vikur, lögreglumenn tóku þátt í fræðslu um fíkniefni í vikunni sem samræmdu prófin voru, 9. bekk Hvolsskóla var boðið í heimsókn á lögreglustöðina þriðjudag 13. maí og tveir lögregluþjónar sáu um hjólaskoðun í skólanum í umferðarvikunni. Félagar í Kiwanishreyfingunni á Suðurlandi komu færandi hendi með hjálma handa nemendum 1. bekkjar. Nemendur Hvolsskóla taka líka þátt í hreinsunarátaki á vegum sveitarfélagsins. Öllum nemendum hefur verið úthlutað svæði í nágrenni skólans. Frá 15. – 23. maí munu nemendur fara út með umsjónarkennurum og hreinsa sitt svæði. Að því loknu ætti allt þorpið og næsta nágrenni að vera orðið hreint. Ásta Halla Ólafsdóttir hefur skipulagt hreinsunin ásamt því að aðstoða við undirbúning gróðursetningar. Í einum umferðarhópnum var tekin ákvörðun um að gróðursetja tré í skólaskóginum og reyna þannig að kolefnisjafna á móti mengun heimilisbílanna. 9. bekkur dvaldi 1 sólarhring í Þórsmörk og nemendur 10. bekkjar hafa verið í starfskynningum í þessari viku. Þemadagar og Vorhátíð Hvolsskóla Vikuna 13. - 15. maí brjótum við upp skólastarfið og allir nemendur 1. - 8. bekkjar vinna í sameiningu að verkefnum sem tengjast umferð. Nemendum þessara bekkja verður skipt upp í 10 aldursblandaða hópa. Í hverjum hópi fyrir sig verður unnið með umferðarreglur og fleira sem tengist umferðinni. Tveir kennarar stjórna vinnunni í hverjum hópi fyrir sig. Afrakstur vikunnar verður síðan m.a. til sýnis á Vorhátíð Hvolsskóla sem verður föstudaginn 16. maí kl. 16:00 - 19:00. Dagskrá vorhátíðarinnar er í mótun og mun birtast á síðunni næstu daga. Dagana 13. - 15. maí er skólastarf með nemendum til kl. 13:00 og engin kennsla er föstudaginn 16. maí.
Samræmdum prófum lokið - Áheitasund Samræmdum prófum lauk í gær fimmtudaginn 8. maí. Eins og undanfarin ár tók áheitasundið við hjá nemendum 10. bekkjar sem hófu sundið kl. 15:00 og þegar þetta er skrifað eru þau enn að synda. Foreldrar hafa skipst á að standa vaktina með unglingunum og sjá um talningu ferða. Heimili og skóli hafa lagt áherslu á að foreldrafélög sjái til þess að nemendur hafi viðfangsefni strax að loknum samræmdum prófum. Áheitasundið er okkar verkefni og er gott dæmi um mikilvæga samvinnu foreldra og skóla í uppbyggingar og fræðslustarfi. Hér eru nokkrar myndir sem teknar voru í góða veðrinu við sundlaugina í gær.
april 2008 BEST -KappAbel Stærðfræðikeppnin Nemendur 9. bekkjar Hvolsskóla höfnuðu í 3. sæti í keppni um besta þemaverkefnið í BEST/KappAbel stærðfræðikeppninni. Dagana 22. og 23. apríl fór fram í Kópavogi lokahátíð keppninnar þar sem fulltrúar bekkjarins kynntu þemaverkefnið sem að þessu sinni hafði yfirskriftina Stærðfræðin og dýrin (dagskrá lokahátíðinnar). Nemendur Hvolsskóla tóku kúna fyrir og heitir verkefnið þeirra Margt býr í kýrhausnum. Samhliða kynningunni kepptu nemendur Hvolsskóla ásamt fulltrúum frá 8 öðrum skólum í stærðfræðiþrautum. Okkar fólki tókst ekki eins vel upp í þrautunum og í þemaverkefninu en 3 efstu skólarnir í samanlögðum þrautum og þemaverkefni kepptu síðan til úrslita í Salnum í Kópavogi. Víðisstaðaskóli sigraði í heildarkeppninni að þessu sinni. Fulltrúar Hvolsskóla í lokakeppninni voru þau Bjarki Oddsson, Elínborg Önundardóttir, Hjalti Kristinsson og Sara Hansen. Við óskum öllum nemendum 9. bekkjar til hamingju með glæsilegan árangur í keppninni. Hvolsskóli í 6.sæti í Skólahreysti Úrslitin í Skólahreysti fóru fram í Laugardalshöllinni fimmtudaginn 17. apríl. 10 lið víðs vegar að af landinu öttu þar kappi og ríkti mikil stemmning í höllinni. Nemendur Hvolsskóla vöktu athygli fyrir frækilega frammistöðu en Hvolsskóli endaði í 6. sæti, á áhorfendapöllunum stóðu nemendur sig ekki síður en stuðningsliðið vakti athygli fyrir vasklega framgöngu. SS styrkti liðið með því að kaupa boli á alla stuðningsmenn Hvolsskóla og allir veifuðu ljósbláum veifum sem nemendur útbjuggu fyrir keppnina. Fyrir Hvolsskóla kepptu þau Jón Þórðarson 10. bekk, Bryndís Sigríksdóttir og Hjalti Kristinsson úr 9. bekk og Theodóra Jóna Guðnadóttir úr 8. bekk. Myndir frá keppninni eru komnar í myndabankann. Foreldrafundur um skólastarfið á elsta stigi Umsjónarkennarar 7. - 10. bekkjar í samráði við þróunarráð boðuðu til foreldrafundar mánudaginn 21. apríl. Á fundinum fjölluðu kennarar um gang mála á aldursstiginu og þá sérstaklega um þá þætti í skólastarfinu sem við erum að þróa í vetur. Einnig var rætt um niðurstöður úr könnun sem lögð var fyrir nemendur fyrir páska. Í lok fundar gátu foreldrar spurt út í skólastarfið og voru mjög gagnlegar umræður um mikilvægi góðra samskipta milli heimila og skóla. Kom m.a. fram að við þurfum að bæta okkur í notkun Mentor forritsins. Skólarnir í Rangárþingi skiptu með sér verðlaunasætum á lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í sal Hvolsskóla mánudaginn 14. apríl. Sigurvegari í keppninni að þessu sinni var Fríða Hansen frá Laugalandsskóla, í öðru sæti Rökkvi Hljómur Kristjánsson Grunnskólanum á Hellu og Heiðrún Huld varð í þriðja sæti. Að sögn dómaranna var mjög erfitt að skera úr um verðlaunasætin því keppendur voru svo jafnir. Hættu áður en þú byrjar Skólastjóri hefur í samstarfi við stjórn Foreldrafélags Hvolsskóla haft samband við Forvarnafélagið "Hættu áður en þú byrjar" og óskað eftir fíkniefnafræðslu fyrir nemendur og foreldra. "Hættu áður en þú byrjar" er samstarfsverkefni Félagsþjónustunnar í Reykjavík, Lögreglunnar í Reykjavík og Marita, forvarna- og hjálparstarfs. Nánari upplýsingar á lögregluvefnum: http://www.logreglan.is/anhaegri.asp?cat_id=900 Eftirtaldir fræðslufundir voru í litla salnum í Hvolnum miðvikudaginn 30. apríl. Það er mjög mikilvægt fyrir okkur að standa vörð um þessi mál og standa áfram vel að heilbrigðu líferni ungmennanna okkar. Skíðaferðir Nemendur 5. og 6. bekkjar fóru á skíði í Skálafelli miðvikudaginn 16. apríl. Bæði nemendur og kennarar vor mjög ánægðri með ferðina. Nemendur 9. og 10. bekkjar fóru í vel heppnaða skíðaferð mánudaginn 7. apríl. Myndir úr ferðunum eru væntanlegar á síðuna. Ekki gafst færi á skíðaferð fyrir 7. og 8. bekk, fundað verður með nemendum þessara bekkja og rætt um hvernig við bætum þeim upp skíðaferðina. Skákmeistarar Bjarki Axelsson og Ívar Máni Garðarsson eru sýslumeistarar í Skólaskák. Sigurður Borgar Ólafsson varð Hvolsskólameistari í yngri aldursflokki en Anton Vignir Guðjónsson varð unglingameistari Hvolsskóla. Þeir Anton og Bjarki hafa skipt með sér titlum undanfarin ár. Bjarki varð nú sýslumeistari í 3. sinn. Anton Vignir varð síðan í öðru sæti í héraðsmóti Suðurlands í Skólaskák. Bekkjarsamkomur Foreldrafélags Hvolsskóla Bekkjartenglar 3. og 8. bekkjar stóðu fyrir samkomum með nemendum í vikunni 21. - 26. apríl. 8. bekkur fór á Selfoss í bíó og 3. bekkur spilaði bingó. Danskennsla í apríl og maí Jón Pétur danskennari kemur og kennir nemendum Hvolsskóla dans eins og undanfarin ár. Nemendur Hvolsskóla fá 6 kennslustundir í dansi á skólatíma í apríl. Fyrsti tíminn var föstudaginn 11. apríl og síðan var áætlað að kenna alla þriðjudaga og föstudaga sem eftir eru í apríl. Vegna veikinda Jóns Péturs hefur færist danskennslan að mestu leyti yfir í maí mánuð. Hugsað um barn Stór hluti nemenda í 9. og 10. bekk tók þátt í verkefninu "Hugsað um barn" helgina 11. - 14. apríl. Verkefnið gengur út á það "að nemendur fá raunveruleiknibarn með sér heim yfir helgi og þeim ber að hugsa um barnið og sinna öllum þörfum þess allan sólarhringinn frá föstudegi til mánudagsmorguns." Nemendur fengu börnin afhent í skólanum föstudaginn 11. apríl og skiluðu því aftur að morgni mánudagsins 14. apríl. Verkefninu fylgir líka fræðsla um skaðsemi áfengis og vímuefna. Skemmtileg stemning skapaðist hér á Hvolsvelli um helgina þar sem ungu "foreldrarnir" tóku börnin með sér hvert sem þeir fóru. Hér eru nokkrar myndir sem voru teknar við afhendingu "barnanna" í skólanum á föstudag. Og hér eru myndir frá foreldrafundi og myndir sem teknar voru á mánudagsmorgni þegar nemendur skiluðu "börnunum" aftur. Ný leikföng í Skólaskjólinu Það hljóp aldeilis á snærið hjá þeim nemendum sem nota Skólaskjól Hvolsskóla nú eftir páskana. Þær Bibba, Stína og Guðrún Inga brugðu sér í bæjarferð á starfsdeginum og versluðu inn fyrir Skjólið og við nemendum blasti fullt af nýjum leikföngum þegar þeir mættu aftur í Skjólið. Fundur um skólastarfið á miðstigi Góður og gagnlegur fundur var haldinn um skólastarfið á miðstigi miðvikudaginn 2. apríl. Deildarstjóri og kennarar fóru yfir markmið sem sett hafa verið á miðstigi, fjölluðu um helstu áherslur sem unnið hefur verið eftir á þessu skólaári og svörðuðu fyrirspurnum frá foreldrum. Fundur sem þessi er mjög mikilvægur fyrir skólastarf Hvolsskóla. mars 2008 Fræðslufundur um hollustu og mataræði Umhverfisnefnd Hvolsskóla ákvað á síðasta fundi sínum að leita eftir því að fá fræðsluerindi í skólann um hollustu og mataræði. Mánudaginn 31. mars kom Guðrún Þóra Hjaltadóttir næringarráðgjafi til okkar í Hvolsskóla. Hún hélt 3 erindi í hádeginu um hollt mataræði. 1 erindi fyrir hvert aldursstig þ.e.a.s kl. 11:15 fyrir yngsta stig, kl. 11:45 fyrir miðstig og kl. 12:15 fyrir elsta stigið. Erindið var hugsað fyrir nemendur, starfsfólk og foreldra. Nokkrir foreldrar þáðu boð okkar og mættu í skólann í hádeginu og hlýddu á erindi Guðrúnar Þóru með okkur. 100. fundur sveitarstjórnar haldinn í Hvolsskóla Fjölmargir mættu á hátíðarfund sveitarstjórnar Rangárþings eystra sem fram fór í sal skólans fimmtudaginn 13. mars. Sveitarstjórn samþykkti á fundinum tvær tillögur þar sem ákveðið var að veita árlega hvatningarverðlaun til þriggja ungmenna sem skara fram úr í Rangárþingi eystra. Einnig verður árlega tilnefndur handhafi "atgeirs Gunnars" til einstaklings sem hefur lagt mikið til samfélagsins. Fyrstu verðlaunahafarnir tengdust allir Hvolsskóla en þeir voru ungmennin Andri Már Óskarsson, Herdís Rútsdóttir og Sveinn Víkingur Þorsteinsson og atgeir Gunnars hlaut Ólafur Elí Magnússon íþróttakennari og þjálfari. Við óskum þeim öllum innilega til hamingju með viðurkenningarnar og vitum að þær verða þeim hvati til enn frekari dáða. Nemendur 10. bekkjar sáu um veitingar á fundinum í umboði sveitarstjórnar. Hér eru myndir frá samkomunni. Árshátíð 7. - 10. bekkjar og uppgjör þemaverkefnis hjá 1. - 3. bekk. Árshátíð 7. - 10. bekkjar var haldin á Hellu fimmtudaginn 13. mars. Nemendur allra skóla í Rangárþingi og Vestur-Skaftafellssýslu skemmtu sér konunglega. Hljómsveitin Klaufarnir spilaði fyrir dansi. Myndir frá árshátíðinni eru í myndabankanum. Nemendur 1. - 3. bekkjar buðu foreldrum sínum í skólann á föstudaginn, síðasta kennsludegi fyrir páska. En þá sýndu nemendur okkur afrakstur vinnu sinnar undanfarnar vikur. Samkoman hófst með því að nemendur sungu tröllasöngva fyrir alla í salnum. Nemendur yngsta stigs hafa unnið að tröllaþema tvær síðustu vikur undir stjórn umsjónarkennara og kennaranemanna Ingibjargar og Alice. Hér og hér eru myndir sem teknar voru á samkomunni á föstudaginn og starfinu á stiginu undanfarnar vikur. Skólastarf hafið að nýju að loknu páskaleyfi Kennsla er hafin að nýju eftir páskaleyfi, nemendur og starfsfólk hress og endurnærð og tekin til við viðfangsefni dagsins. Skólahjúkrunarfræðingur vikulega Ólöf Árnadóttir hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðin til starfa við heilsugæslu Rangárþings sem skólahjúkrunarfræðingur. Hún verður til viðtals í Hvolsskóla alla mánudagsmorgna út skólaárið. Einnig er hægt að hafa samband við Ólöfu í síma 615-4606. Mjög góð þátttaka í leikhúsferð Fimmtudaginn 6. mars fór 90 manna hópur nemenda í 7. - 10. bekk ásamt starfsfólki á Jesus Christ Superstar. Ferðin tókst í alla staði mjög vel og nemendur Hvolsskóla til fyrirmyndar. Úrslit í söngkeppni SAMFÉS Úrslitakeppnin í söngkeppni SAMFÉS fór fram í Laugardalshöllinni laugardaginn 8. mars. Okkar fulltrúar þar þau Brynja Sif og hljóðfæraleikararnir Aníta, Stella, Elín Björk og Óskar, stóðu sig frábærlega. Fjöldi nemenda fylgdi þeim eftir og skemmtu sér konunglega. 9. bekkur í undanúrslit í KappAbel Mikið er um að vera þessa dagana hjá nemendum 9. bekkjar en þeir vinna nú að þemaverkefni í KappAbel keppninni. En 9. bekkur Hvolsskóla er einn af 11 bekkjum sem taka þátt í undanúrslitum KappAbel stærðfræði keppninnar. Áður en undanúrslitin fara fram eiga nemendur bekkjarins að ljúka þemaverkefni um Stærðfræðina og dýrin. Undanúrslitin verða í Kópavogi dagana 22. og 23. apríl. Í undanúrslitakeppninni munu 4 nemendur úr bekknum, 2 drengir og 2 stúlkur kynna þemaverkefnið og leysa stærðfræðiþrautir. Við munum fylgjast spennt með gengi okkar barna og óskum þeim góðs gengis í keppninni. Tónlist fyrir alla Mánudaginn 10. mars fengum við góða listamenn í heimsókn í skólann. Þau Bára Grímsdóttir og Chris Fosters tróðu hér upp með rímnasöng og spiluðu undir á langspil og fleiri gömul hljóðfæri. Myndir frá samkomunni væntanlegar seinna. Bekkjarsamkomur á yngsta stigi Vikuna 3. - 8. mars stóðu bekkjartenglar í 1. og 3. bekk fyrir samkomum fyrir foreldra og börn. 3. bekkingar komu saman og spiluðu við foreldra sína, en 1. bekkingar bökuðu pizzur. Myndir frá samkomunum eru í myndabankanum. febrúar 2008 Sigur í Skólahreysti Nemendur Hvolsskóla gerðu sér lítið fyrir og unnu Suðurlandsriðilinn í Skólahreysti sem fram fór á Selfossi fimmtudaginn 14. febrúar síðastliðinn. Þetta þýðir að Hvolsskóli er kominn í úrslit keppninnar sem fram fer í Laugardalshöllinni 17. apríl næstkomandi. Nánari upplýsingar um keppnina má finna á http://www.skolahreysti.is/. Við óskum Skemmtilegir tónleikar Þrátt fyrir snjókomu og válynd veður var vel mætt á uppskerutónleika nemenda fimmtudaginn 28. feb. Á tónleikunum komu fram nemendur úr eldri árgöngum skólans og fluttu lög sem þeir hafa æft í tónlistartímum í vetur undir dyggri leiðsögn Ingibjargar Erlingsdóttur. Tónleikarnir tókust í alla staði mjög vel og þökkum við öllum þeim sem þar komu fram. Glæsilegur árangur í glímu Nemendur Hvolsskóla stóðu sig frábærlega í Skólaglímu HSK sem fram fór á Laugarvatni miðvikudaginn 13. feb. Hópurinn vann 3 flokka af fjórum og kom heim með 3 bikara. Nánari úrslit má sjá á heimasíðu hsk. Marinó fékk viðurkenningu Marinó Rafn Pálsson fékk viðurkenningu frá Landssambandi Slökkviliðs- og Sjúkraflutningamanna nú í vikunni en hann svaraði öllum spurningum réttum í eldvarnagetraun Eldvarnaátaks 2008. Marinó fékk MP3 spilara, slökkvitæki og viðurkenningarskjal að launum. Hér er mynd af Marinó með viðurkenningarskjalið. Góð mæting á foreldrafund - verkefninu "Sögustund" ýtt úr vör. Fjölmargir mættu á foreldrafundinn á yngsta stigi mánudaginn 18. febrúar síðastliðinn. Á fundinum fóru stjórnendur skólans og umsjónarkennarar yfir starfið á stiginu í vetur og foreldrum gafst tækifæri til að spyrja stjórnendur og umsjónarkennara út í skólastarfið. Góður andi var á fundinum. M.a. var ýtt úr vör skemmtilegu samstarfsverkefni þar sem við tengjum saman lestrarstundir barnanna í skólanum og sögustundir heima. Foreldrar taka að sér að lesa fyrir börnin heima 4 sinnum í viku í 10 mínútur í senn. Börnin koma svo með bækurnar í skólann og lesa í þeim í lestrarstundunum sem eru 15 mínútur á dag á yngsta stigi. Vel heppnuð árshátíð 4. - 7. bekkjar - Sirkus og gleði fór fram í Hvolsskóla á sprengidag 5. febrúar. Um 200 manns sáu sýningarnar tvær og tókust þær í alla staði mjög vel. Sirkus og gleði varð til í hugmyndavinnu nemenda á miðstigi og var lögð áhersla á fjölbreytni og gaman. Hér eru myndir sem teknar voru á æfingum með áhorfendum, nemendur í öðrum bekkjum, á mánudag og þriðjudag. Myndir frá sýningunum eru væntanlegar í myndabankann. Foreldradagur var í Hvolsskóla, miðvikudaginn 13. feb. Nemendur voru í aðalhlutverki með því að fara yfir stöðu sína í náminu, segja frá árangri og sýna verkefni sem þeir hafa unnið í skólanum undanfarnar vikur. Einnig sögðu nemendur foreldrum frá þeim markmiðum sem þeir hyggjast ná í náminu á önninni. Umsjónarkennarar aðstoðuðu nemendur að undirbúa fundina með nemendum og voru til staðar en nemendur leiddu umræðuna. Markmið með þessu fyrirkomulagi er m.a. að auka virkni nemenda og gera þá ábyrgari fyrir námi sínu. Að mati margra kennara Hvolsskóla er þessi skipan mála á foreldradegi árangursrík og mun skemmtilegri. Nemendur 10. bekkjar seldu skólapeysur og buðu upp á veislukaffi að vanda. janúar 2008 Snjólist Sigrún myndmenntakennari hefur nýtt sér snjóinn síðustu daga á skemmtilegan hátt í myndmenntakennslunni. Nemendur hafa náð í snjó í bakka, mótað úr honum alls konar form og málað svo með þekjulitum. Þegar snjórinn bráðnar blandast litirnir saman og nemendur læra allt um blönun lita. Á myndasíðunni eru skemmtilegar myndir af nemendum af yngsta- og miðstigi í snjólist. Snjór, snjór, snjór Nú er snjór og nemendur og kennarar sjá fullt af tækifærum í snjónum. Hér eru nokkrar myndir sem voru teknar í janúar af nemendum yngsta stigs úti í snjónum. Skólahreysti Þriðjudaginn 29. jan fór fram undankeppni í Skólahreysti í Hvolsskóla. Fjöldi nemenda í 7. - 10. bekk spreytti sig í þrautum keppninnar. Hvolsskóli mun taka þátt í Suðurlandsriðli sem fram fer 14. febrúar næstkomandi. Íþróttakennarar velja í liðið með hliðsjón af frammistöðu nemenda í keppninni í dag. Stjörnuhimininn skoðaður Nemendur 4. - 10. bekkjar fóru í ferðalag um stjörnuheiminn mánudaginn 14. jan. Við fengum í heimsókn heilt stjörnuver sem var sett upp í Hvolnum og fengu nemendur þessara bekkja fræðslu um himingeiminn og stjörnurnar. Þetta var skemmtilegt ævintýri. Hér má sjá stjörnukort sem sýnir afstöðu stjarnanna á himninum á haustkvöldum. Upplýsingar um stjörnuverið eru á http://natturumyndir.is/ og út frá þeirri síðu er að finna margvíslegan fróðleik um stjörnur og náttúruna. Skólastarf komið í fullan gang Nemendur og starfsfólk keppast nú við að koma reglu á daglegt líf eftir gott jólafrí. Vikuna 7. - 11. jan dvöldu hjá okkur tveir kennaranemar, þær heita Ingibjörg Þóra og Alice. Þær fylgdust með kennslu í 1. - 3. bekk og munu svo koma aftur til okkar í mars og kenna. janúar 2008 Íþróttahátíð grunnskólanna í Rangárþingi Miðvikudaginn 23. janúar fór fram á Laugalandi íþróttakeppni milli Helluskóla, Laugalandsskóla og Hvolsskóla. Keppt var í blaki, körfubolta og köngulóarfótbolta. Nemendur Hvolsskóla sigruðu í fótboltanum en urðu í öðru sæti í blaki. Laugalandsskóli og Hvolsskóli höfðu hlotið jafnmörg stig í lok keppnisdags en Lauglendingar voru dæmdir sigurvegarar vegna sigurs í tveimur greinum. Myndir og nánar um úrslit síðar. Einkunnir í "Glugga"umslögum Nemendur Hvolsskóla fengu að þessu sinni allar einkunnir afhentar í "Gluggaumslögum". Hvolsskóli er skóli á grænni grein og var ákveðið að nota héraðsblaðið Gluggann og sauma úr honum umslög utan um einkunnaspjöld nemenda. Hér situr Kristín Erna Leifsdóttir stuðningsfulltrúi önnum kafin og saumar "gluggaumslög". 20.desember Viðburðaríkur desembermánuður Undanfarna daga hefur verið mikið um að vera í skólanum. Skólastarfi lauk með einkunnaafhendingu fimmtudaginn 20. desember. Þá mættu foreldrar og nemendur saman í viðtöl til umsjónarkennara þar sem starf haustannarinnar var gert upp og hugað að vorönninni. Jólagleðin fór fram þriðjudaginn 18. desember. Nemendur hófu daginn á jólastund með umsjónarkennurum. 1. - 7. bekkur gengu í kringum jólatréð og jólasveinar komu í heimsókn. 8. - 10. bekkur keppti í Gettu betur úti í íþróttamiðstöð, að þessu sinni reyndust 8. bekkingar getspakasti bekkur skólans. Myndir frá jólagleði í myndabanka. Barnakór Hvolsskóla hélt vel heppnaða tónleika í Krosskirkju mánudagskvöldið 17. des. Myndir í myndabanka. Jólatónleikar forskólans fóru fram föstudaginn 14. des þrátt fyrir mikið óveður þann dag. Myndir í myndabanka Landgræðslan gaf okkur jólatré og Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri kveikti á trénu við hátíðlega athöfn fimmtudagsmorguninn 13. desember. Nemendaráð skipulagði Sparifatadag hjá 7. - 10. bekk miðvikudaginn 12. desember. Veittar voru viðurkenningar fyrir best klæddu einstaklingana. Ólafur Elí og Ingveldur urðu hlutskörpust hjá kennurum og Bryndís Sigríksdóttir og Bjarki Oddsson voru valin best klæddu nemendurnir. Myndir í myndabanka. Þriðjudaginn 11. desember var jólamatur í mötuneytinu. Þann dag gæddum við okkur á dýrindis mat sem þær mötuneytiskonur framreiddu handa okkur.
20. desember Í lok foreldradags Í dag komu eftirvæntingarfullir nemendur ásamt foreldrum sínum í viðtal til umsjónarkennara og fengu afhent Gluggaumslög með einkunnum og upplýsingum um afrakstur haustannarinnar. Nemendur 10. bekkjar seldu veislukaffi og margir gáfu sér tíma í jólönnunum og settust niður yfir dýrindis veitingum. Síðan gengu allir út í skammdegið fullir tilhlökkunar, 3 dagar til jóla. Skyldu jólin verða hvít eða rauð? Samræmd próf í 4. og 7. bekk Nemendur 4. og 7. bekkjar fengu í dag afhentar niðurstöður úr samræmdum prófum sem fóru fram í lok október. Nemendur Hvolsskóla náðu ágætis árangri að þessu sinni. Meðaltal skólans er yfir Suðurlandsmeðaltali í 3 prófum af 4 og rétt við Suðurlandsmeðaltal í 1. Nemendur 7. bekkjar náðu glæsilegum árangri í stærðfræði en meðaleinkunn bekkjarins í stærðfræði var 7,9 en landsmeðaltal í stærðfræði er 7,0. Skreytingar úr skyrdósum og jólakort úr afklippum frá Svartlist Nú á haustönninni hafa nemendur miðstigs flokkað allt sitt sorp og farið reglulega með í grenndargáma. Þeir söfnuðu öllum dósum undan mjólkurvörum sem bárust í hús á haustönninni og lokum þeirra og var allt jólaskraut útbúið úr þeim ásamt afskurði af pappír sem þeir fengu gefins í prentsmiðjunni Svartlist á Hellu. Skyrdósirnar voru skreyttar með efni úr músastigum liðinna ára, settar utan um jólaljós og prýða núna skólastofurnar og sundlaugargestir njóta þeirra í skammdegismyrkrinu. Jólakortin þetta árið voru útbúin úr afklippum frá prentsmiðjunni á Hellu og skreytt ýmist með álpappír skyrdósa eða úrklippum úr dagblöðum. Nemendur eru að verða vel meðvitaðir um mikilvægi endurnýtingar og fullir bjartsýni að takast á við framtíðina. 18. desember Barnakór Hvolsskóla á þrennum tónleikum Nú er annatími hjá Barnakór Hvolsskóla. Kórinn söng á föstudaginn þegar kveikt var á jólatrénu við Landsbankann og á sunnudagskvöldið tók kórinn þátt í aðventutónleikum í Stórólfshvolskirkju. Mánudaginn 17. desember heldur kórinn svo jólatónleika í Krosskirkju.
Fjölmenni á árshátíð 1. - 3. bekkjar
Vel heppnað jólaföndur
30. nóvember Glæsileg dagskrá á Degi íslenskrar tungu
Á Degi íslenskrar tungu, föstudaginn 16. nóvember, lásu nemendur 10. bekkjar Njálu frá upphafi til enda. Lesturinn hófst kl. 7:30 um morguninn en þá setti Haukur G Kristjánsson samkomuna og kl. 20:35 lauk Guðgeir Óskar Ómarsson formaður nemendaráðs lestrinum. Nemendur á yngsta stigi sungu lög við ljóð eftir Jónas Hallgrímsson, nemendur á miðstigi lásu upp úr ljóðum eftir Jónas og nemendur á elsta stigi lásu sögu og fluttu lög. Einnig flutti leiklistarhópur frá Margréti Tryggvadóttur leikþátt úr Njálu og Gísli Stefánsson og Jón Smári Lárusson fluttu lög úr söngleiknum Gunnar á Hlíðarenda. Heiðursgestir í ár voru tveir, þau Björgvin Sigurðsson viðskiptaráðherra og Svandís Ingimundardóttir þróunar- og skólafulltrúi hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Björgvin fjallaði um viðskipti í Njálu og Svandís ræddi við nemendur um listaskáldið Jónas, mikilvægi dagsins og mikilvægi þess að rækta íslenskt mál. Fjölmargir gestir litu inn til okkar í tilefni dagsins og þökkum við öllum þeim sem lögðu hönd á plóginn til að gera þennan dag svo glæsilegan sem raun bar vitni.
Hvolsskóli móðurskóli í vettvangsnámi KHÍ Hvolsskóli hefur ásamt fleiri skólum gert samstarfssamning við KHÍ um menntun kennara 2007 – 2010. Hvolsskóli veitir ákv. fjölda nemenda aðgang að skólanum til að vinna þau verkefni sem tengjast vettvangi. Í samningnum fellst m.a. æfingakennsla, kynnisheimsóknir, athuganir á skólastarfi þátttaka í undirbúningi og framkvæmd kennslu. Vikuna 12. - 16. nóv. dvöldu hjá okkur 4 kennaranemar. Markmið heimsóknarinnar var að kynnast skólanum. Nemarnir fylgdust með starfinu á öllum stigum og aðstoðuðu við undirbúning dagskrár á Degi íslenskrar tungu. Þessir nemar hafa valið Hvolsskóla sem móðurskóla sinn í vettvangsnámi við KHÍ.
23. nóvember Ræðukeppni Hvolsskóla Úrslit í ræðukeppni Hvolsskóla fóru fram í sal skólans fimmtudaginn 22. nóv. 10 nemendur úr 8. 9. og 10. bekk kepptu um 5 sæti í ræðuliði skólans. Áður fór fram keppni í hverjum bekk fyrir sig. Keppnin var hnífjöfn og fór svo að dómnefnd valdi 6 nemendur til þess að skipa ræðulið skólans að þessu sinni. Þau eru Kristbergur og Karitas úr 9. bekk, Heiðrún úr 10. bekk og Ástrún, Albert og Nína úr 8. bekk. Hlutverk þeirra er nú að undirbúa og æfa ræður fyrir keppni milli skólanna í Rangárþingi sem verður miðvikudagskvöldið 28. nóvember næstkomandi. Ræðuefnið að þessu sinni er Afþreying - bækur, tölvur eða sjónvarp. Nemendur Hvolsskóla eiga að mæla með sjónvarpi en andmæla bókum og tölvum. Við óskum ræðuliðinu góðs gengis í keppninni. Forvarnardagur Á Forvarnardeginum 21. nóvember unnu nemendur í 9. bekk að verkefnum sem tengjast forvörnum. Fulltrúi frá lögreglunni og Benóný Jónsson formaður Dímonar komu í heimsókn, ræddu við nemendur um forvarnir og aðstoðuðu í verkefnavinnu. Brynja vann undankeppnina Brynja Sif Hlynsdóttir varð hlutskörpust í undankeppni Söngkeppni Samfés sem fram fór í skólanum mánudagskövldið 5. nóv. Brynja söng lagið Með þér og spilaði sjálf undir á píanó. Í öðru sæti voru þær Ástrún Svala Óskarsdóttir og Lea Birna Stefaníudóttir ásamt hljómsveit og í þriðja sæti voru María Rúnarsdóttir og hljómsveit. Brynja keppir á úrslitakeppni SAMFÉS eftir áramótin en fulltrúi Félagsmiðstöðvarinnar Tvistsins kemst beint í úrslitakeppnina vegna sigurs Herdísar í fyrra. Brynja, Ástrún og Lea Birna verða fulltrúar Hvolsskóla í söngkeppni milli skólanna í Rangárþingi sem fram fer á Hvolsvelli um leið og ræðukeppnin 28. nóv.
17.nóvember Dagur íslenskrar tungu í Hvolsskóla Á Degi íslenskrar tungu, föstudaginn 16. nóvember, munu nemendur 10. bekkjar lesa Njálu eins og tvö undanfarin ár. Lesturinn hefst kl. 7:30 um morguninn en þá mun Haukur G. Kristjánsson sveitarstjórnarmaður setja samkomuna og lýkur á tíunda tímanum um kvöldið. Öðru hvoru verður gert hlé á lestrinum og boðið upp á fleiri atriði til skemmtunar. M.a. munu nemendur á yngsta stigi syngja lög við ljóð eftir Jónas Hallgrímsson (ljóðahefti), nemendur á miðstigi lesa úr ljóðum eftir Jónas og nemendur á elsta stigi koma fram. Einnig flytur leiklistarhópur frá Margréti Tryggvadóttur leikþátt úr Njálu og flutt verða lög úr söngleiknum Gunnar og Njáll. Heiðursgestir í ár eru tveir, þau Björgvin Sigurðsson viðskiptaráðherra og Svandís Ingimundardóttir þróunar- og skólafulltrúi hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Hér má finna dagskrá Dags íslenskrar tungu. 13. nóvember Starfsmenn á námskeiði í Mentor
Í dag fengu nemendur Hvolsskóla kærkomið frí og söfnuðu kröftum fyrir starfið næstu vikur. Starfsmenn Hvolsskóla notuðu tímann til undirbúnings og skipulags. Meðal annars fengum við fulltrúa frá Mentor til að kenna okkur og gera okkur færari í notkun þessa frábæra forrits, sem hjálpar okkur við að tengjast heimilunum betur. 10. nóvember Barnakór Hvolsskóla á Héraðsvöku Eldri kór skólans kom fram á Héraðsvöku Rangæinga í Hvoli laugardaginn 27. október. Kórinn söng nokkur lög á hátíðinni og stóðu börnin sig mjög vel. Næsta verkefni kórsins eru jólatónleikar í Krosskirkju fimmtudaginn 13. desember. Nýir starfsmenn í Hvolsskóla Búið er að ráða í stöður við Hvolsskóla sem auglýstar voru fyrir stuttu. Guri Hilstad Ólason kemur inn sem bekkjarkennari á yngsta stigi, Arnheiður Dögg Einarsdóttir kemur inn sem kennari í forföllum fyrir KHÍ-nema og Sóley Ástvaldsdóttir þroskaþjálfi kemur til starfa á miðstiginu. Nýr liðsmaður í Skólaskjóli er Ingibjörg Ýr Ólafsdóttir. Við bjóðum þær stöllur allar hjartanlega velkomnar til starfa. 1. nóvember Írena fékk gjöf frá Landsbankanum Í dag fimmtudaginn 1.nóv. fékk Írena Kjartansdóttir nemandi i 10. bekk afhenta gjöf frá Landsbankanum. (sjá mynd) Nafn hennar var dregið úr potti fjölmargra nemenda í 10. bekkjum af landinu öllu. Nemendur 10. bekkjar eru þátttakendur í Raunveruleiknum sem Landsbanki Íslands stendur fyrir. Leikurinn er gagnvirkur hermileikur hannaður sem fjármála- og neytendafræðsla í efsta bekk grunnskóla. Leikurinn er spilaður í 28 daga og þátttakendur eldast um 1 ár á degi hverjum. Með þjálfun í leiknum eiga nemendur að fá innsýn í þær ákvarðanir sem venjulegur þjóðfélagsþegn þarf að taka á lífshlaupi sínu. Nánari upplýsingar um Raunveruleikinn má finna hér Söngkeppni Samfés Þessa dagana er mikið um að vera hjá eldri nemendum skólans. Margir nemendur keppast við að undirbúa sig fyrir keppni í Söngkeppni SAMFÉS, en undankeppnin verður haldin hér í Hvolsskóla í samstarfi við Félagsmiðstöðina Tvistinn. Undankeppnin verður mánudagskvöldið 5. nóv. kl. 20:30 og hvetjum við nemendur, foreldra og kennara til að fjölmenna á samkomuna. Aðgangseyrir er kr. 500. Sigurvegari í þessari keppni keppir í söngkeppni sunnlenskra félagsmiðstöðva og sigurvegarar í þeirri keppni komast í úrlsitakeppni á landsvísu. Eins og flestum er í fersku minni sigraði Herdís Rútsdóttir í þessari keppni í fyrra. Hér eru nokkrar myndir sem teknar voru á æfingu í hádeginu í dag. Vel heppnaður foreldradagur í Hvolsskóla Ágætu foreldrar, nemendur og starfsfólk ég færi ykkur þakkir fyrir vel heppnaðan foreldradag þar sem við vorum að þróa nýtt fyrirkomulag foreldradaganna. Tilgangur breytinganna er að færa foreldradaginn nær nemandanum og náminu m.a. með því að fá nemandanum hlutverk á sjálfum fundinum þar sem hann kynnti stöðu mála frá sínu sjónarhorni. > Að lokum vil ég benda foreldrum á að alltaf er hægt að panta tíma hjá ritara skólans í síma 488-4240 fyrir einkafund með kennara eða skólastjóra ef ræða þarf einstök málefni nemanda. > Með kveðju Unnar Þór Böðvarsson, skólastjóri 28.október Kynning á Svíþjóðarferð Nemendur 8. bekkjar hafa undanfarnar vikur unnið að kynningum á Svíþjóðarferðinni sem þeir fóru í maí síðastliðnum. Þeir bjóða foreldrum sínum og nemendum 7. 9. og 10. bekkjar á kynningu í íslenskutíma á þriðjudag. Þær Brynja Sif Hlynsdóttir, Sigrún Ingunn Pálsdóttir og Elín B. Sigurjónsdóttir gerðu bloggsíðu um ferðina. Hér er síðan þeirra http://www.blog.central.is/-sweden- Fræðslufundur á Laugalandi fyrir foreldra Mánudaginn 22. október verður námskeið fyrir bekkjarfulltrúa og alla forráðamenn barna í grunnskólum Suðurlands. Námskeiðið veður á Laugalandi í Holtum og hefst kl. 20:00. Nánari upplýsingar um námskeiðið hér 22.október Samræmd próf og 8. bekkur á ferðalagi Samræmdu prófin eru í 4. og 7. bekk í dag og á morgun. Nemendur 8. bekkjar og umsjónarkennarar þeirra lögðu upp í ferðalag á Snæfellsnes í gær og koma heim á morgun. Með þeim í ferðinni er Kristín Leifsdóttir stuðningsfulltrúi en hún bjó á Snæfellsnesi fyrir nokkrum árum.
Tónlist fyrir alla og dansleikur Fyrir 2 vikum fengum við góða gesti í heimsókn í skólann. Þar voru á ferð Tríó Björns Thoroddsen og Andrea Gylfadóttir söngkona. Þau fluttu fyrir okkur tónlistardagskrá sem þau nefna "söngvar afa og ömmu". Nemendur og starfsfólk skemmti sér konunglega á tónleikunum. 11. október fóru nemendur 8. 9. og 10. bekkjar á dansleik í Vík. Þetta er árlegur haustdansleikur sem haldinn er í samstarfi við skólana í Rangárþingi og Grunnskólann í Vík. Það eru Víkurbúar sem sjá um samkomuna að þessu sinni. Birtum myndir af þessu viðburðum og miklu fleiru við fyrsta tækifæri. 18. október Guðný Halla Jónsdóttir með gull og silfur Guðný Halla Jónsdóttir fyrrverandi nemandi Hvolsskóla stóð sig frábærlega á Ólympíuleikunum í Kína. Hún vann bæði gull og silfurverðlaun í sundkeppninni. Til hamingju Guðný Halla með frábæran árangur, hér er mynd af Guðnýju Höllu með verðlaunapeningana um hálsinn. 17. október Ný stjórn í Foreldrafélagi Hvolsskóla Nú 15. september tók ný stjórn við í Foreldrafélagi Hvolsskóla. Nýja stjórn skipa: Guðmunda Þorsteinsdóttir, formaður Fundargerð aðalfundar frá 16. apríl 2007 er að finna á svæði Foreldrafélagsins á upplýsingasíðunni. Á aðalfundinum voru gerðar breytingar á lögum félagsins og nafni félagsins breytt. Aðeins þeir kennarar sem eiga börn í Hvolsskóla eru nú félagar í Foreldrafélagi Hvolsskóla, en ekki allir kennarar eins og áður. Matseðill Matseðill mánaðarins er kominn á vefinn! Nú opnast hann sem word-skjal en það ætti að auðvelda útprentun fyrir þá sem það vilja.
25. september Kynningarfundur í 4. - 6. bekk í gær Foreldrar 32 barna í 4. 5. og 6. bekk mættu á fund sem kennarar boðuðu til í gær mánudag kl. 16:30. Á fundinum kynntu umsjónarkennarar og skólastjórnendur skólastarfið og svöruðu spurningum frá foreldrum. Í lok fundar kynntu foreldrar sér námssvæði barnanna. 24.september Skipulags- og starfsdagur Haustþing kennara fór fram á Flúðum fimmtudaginn 20. og föstudaginn 21. sept. 19.september Réttarferð Nemendur 4. - 6. bekkjar fóru í Fljótshlíðarréttir í gær. Nemendur og kennarar fóru héðan kl. 10:00 og komu aftur úr réttum kl. 12:00. Það er mikilvægt fyrir skólastarfið að fá tækifæri til að taka þátt í viðburðum sem þessum og fræðast um störf bænda.
17. september 2007 Heimsókn í sögusetrið Nú stendur yfir sýning á sögusetrinu á verkum Nínu Sæmundsson. Nemendur í myndmenntasmiðjum í 1.-6. bekk fóru og skoðuðu verk Nínu og námu fróðleik um æfi hennar og störf. Við þökkum fyrir góðar móttökur í Gallerý Ormi og hvetjum alla til njóta þessa tækifæris að skoða verk hennar. Myndir frá heimsókninni eru væntanlegar í myndabankann. Skólastarf hafið Starfsgleði einkennir skólastarfið í Hvolsskóla nú í upphafi skólaárs. Undanfarna daga hefur starfsfólk unnið hörðum höndum að undirbúningi vetrarins. Búið er að endurskoða allar námslýsingar og munu þær birtast á netinu næstu daga. Þeir sem þurfa að fá námslýsingar útprentaðar hafi samband við umsjónarkennara. Upplýsingabæklingur um helstu þætti skólastarfsins verður afhentur foreldrum á kynningarfundum í september. Upplýsingar munu birtast á heimasíðunni næstu daga. Skólaskjólið frá 24. ágústSkólaskjólið verður starfrækt mánudaga til föstudaga fyrir nemendur úr 1. til 4. bekk að loknum skóla til kl. 17. Sækja þarf um fyrir nemendur í Skólaskjólinu hjá ritara skólans í síma 488-4240 en Skólaskjólið byrjaði 24. ágúst. Skólaskjól fellur niður þá daga sem ekki er kennsla í Hvolsskóla
29. ágúst 2007 Ný netföng Nú er verið að uppfæra netföng starfsmanna hér á síðunni. Það er langt komið en nýju netföngin hafa hins vegar ekki verið tekin í notkun af öllum ennþá. Fólk er þess vegna beðið að sýna því skilning meðan við erum að aðlagast breytingunum.
23. ágúst 2007 Ný slóð á heimasíðu og ný netföng starfsfólks Í gær var nýja slóðin, www.hvolsskoli.is, tekin í notkun og verður heimasíðan framvegis þar. Gamla síðan verður virk næstu daga svo fólk geti uppfært stillingar hjá sér. Allir starfsmenn fá ný netföng um þessar mundir. Nýju netföngin verða aðgengileg á síðunni um starfsfólk skólans. Unnið er að breytingum og uppfærslum á þeirri síðu og verða breytingar birtar við fyrsta tækifæri. Nýr matseðill Matseðill fyrir ágúst og september er nú aðgengilegur á heimasíðunni.
31. maí 2007 Glæsileg vorhátíð Hvolsskóla 11.maí Fjölmenni mætti á vorhátíðina okkar sem tókst í alla staði frábærlega. Veðurguðirnir léku við okkur, foreldrar reiddu fram dýrindis kræsingar, SS lagði sitt af mörkum með leiktækjum og pylsuvagni og nemendur og starfsfólk höfðu undirbúið skemmtilegar sýningar bæði úti og inni. Við þökkum öllum sem komu að undirbúningi hátíðarinnar fyrir þeirra framlag. Myndir frá hátíðinni eru væntanlegar á vefinn. Áheitasund 100 km náðust á 20 tímum Nemendur 10. bekkjar stóðu heldur betur við sitt í áheitasundinu. Kennarar og nemendur höfðu sett sér það markmið að ná 100 km fyrir kl. 11:00 á föstudegi en kl. 8:00 um morguninn hafði hópurinn synt 110 km. Til hamingju með glæsilegan árangur. Góðir uppskerutónleikar Tónleikarnir voru haldnir fimmtudaginn 10.maí til að safna í hljóðfærasjóð fyrir nemendur skólans. 12000 krónur söfnuðust. Á dagskrá voru 15 atriði sem voru að mestu leyti sömu atriði og voru flutt í undankeppni Samfés. Allir flytjendur stóðu sig með prýði og tónleikarnir tókust ótrúlega vel.
|
||
|
Hvolsskóli s. 488 4240