|
Unnið af Katrínu Møller Eiríksdóttur, Hvolsskóla 2005 |
|
|
| Kynning Áttu uppáhaldshljómsveit? Hver er hún? Hvaða tónlist spilar hún og hvaðan koma meðlimir hennar? Flestir eiga sér uppáhaldslag og uppáhaldshljómsveit. Í þessu verkefni átt þú að fjalla um uppáhaldshljómsveitina þína og leita þér upplýsinga um hana á Netinu. Markmiðið er að þú lærir að nota Netið til upplýsingaöflunar og setjir upplýsingarnar fram á skýran hátt. |
|
Verkefni
Þið eigið að
Leitið þið
upplýsinga á vefnum um hljómsveitina. Setjið upplýsingarnar upp í Word-skjal
og myndskreytið með myndum af Netinu. Athugið að skrifa með eigin orðum,
þið megið ekki afrita (klippa og líma) efni af Netinu. |
|
Bjargir
Skrifið inn
leitarorð (stundum verður það að vera á ensku), skoðið síðurnar sem upp
koma og veljið úr. Ef hljómsveitin er erlend gætuð þið þurft að lesa
töluvert á ensku. |
|
Ferli
1. Veldu þér vinnufélaga sem hefur sama tónlistarsmekk og þú. Athugið að þið megið ekki vera fleiri en tveir saman. 2. Veljið ykkur hljómsveit og leitið upplýsinga um hana á Netinu. Gott er að vinna í tveim tölvum. Veljið myndir (athuga að vista þær rétt!!) og lesið ykkur til um það sem þið fáið að vita um hana. 3. Skrifið texta í Word um hljómsveitina. Textinn á að þekja að minnsta kosti eina blaðsíðu (með myndum). Notið 12 punkta letur, 1,5 línubil (svertið allan textann og ýtið síðan á Ctrl + 5) og staðlaðar spássíur (ekki gera breytingar á spássíum). Þið ráðið sjálf hvaða leturgerð þið notið. 4. Myndskreytið textann með myndunum af Netinu (athugið að textinn á að vera 70% af blaðsíðunni og myndirnar 30%, annars verðið þið að bæta við blaðsíðu). 5. Neðst setjið þið slóðirnar þar sem þið funduð efnið (gott er að skrifa slóðina hjá sér, t.d. í word-skjalinu, um leið og maður finnur efni sem maður ætlar að nota af síðunni). 6. Vistið skjalið ykkar þannig að báðir aðilar eigi eintak í sinni möppu (sem sagt vista tvisvar sinnum). 7. Gerið skoðanakönnun þar sem þið kannið hvort aðrir í hópnum hafi sömu uppáhaldshljómsveit og þið. Setjið niðurstöðurnar upp í Excel og búið til súlurit. Vistið það skjal hjá báðum aðilum líka. 8. Sendið Excel- og Word-skjölin sem viðhengi í tölvupósti til kennarans ykkar. |
|
Mat
Hver og einn
verður metinn einstaklingslega þannig að tveir aðilar innan sama hóps geta
fengið ólíka einkunn. |
|
Niðurstaða
Nú ertu vonandi búin(n) að fræðast um hljómsveitna þína um leið og þú hefur æft þig í að nota Netið til upplýsingaöflunar. Netið er stór miðill sem inniheldur mikið af upplýsingum um ótrúlega margt milli himins og jarðar. Næst þegar þig vantar að vita eitthvað um eitthvað getur þú prófað að finna það á vefnum. |
|
Gert 13.
september 2005. |