Kennsluáætlanir haustannar á elsta stigi

Kristinn í vinnusmiðju NKG

Kristinn Andrésson nemandi í 8. bekk var einn af 44 hugmyndasmiðum sem valdir voru til að taka þátt í vinnusmiðju í Nýsköpunarkeppni grunnskóla 2009. Þessir einstaklingar komust í gegnum matsferli þar sem hugmyndir þeirra voru metnar með tilliti til raunsæi, hagnýti og nýnæmi, samkvæmt tilkynningu.

Lokahóf keppninnar fór svo fram í Grafarvogskirkju laugardaginn 19. september, en öllum sem tóku þátt í vinnusmiðjunni var boðið á lokahófið. Meðfylgjandi myndir voru teknar af Kristni við þetta tækifæri.

Á annarri myndinni sést Kristinn með hugmyndina sína Búhjálp, sem er pallbíll með fjarstýrðum örmum. Armarnir eru á hliðinni á pallbílnum og er kló á endanum sem hægt er að nota við ýmis störf við búskap, t.d. girðingavinnu. Hægt er að stýra örmunum innan úr bílnum jafnt sem utan frá. Á hinni myndinni er Kristinn með forseta Íslands Hr. Ólafi Ragnar Grímssyni en hann er verndari keppninnar og afhenti verðlaun á hátíðinni. Nánari upplýsingar um nýsköpunarkeppnina. Nánari upplýsingar um keppnina og verðlaunahafa er að finna hér.

Breytingar á stjórn Foreldrafélags Hvolsskóla

Á aðalfundi Foreldrafélags Hvolsskóla í gær fimmtudaginn 29. september urðu þær breytingar á stjórn að þau Guðmunda Þorsteinsdóttir formaður, Þórunn Óskarsdóttir ritari og Stefán Steinsson meðstjórnandi gengu úr stjórn og í stað þeirra voru kosnar þær Anna Kristín Helgadóttir, Ragna Aðalbjörnsdóttir og Unnur Óskarsdóttir. Ný stjórn á eftir að skipta með sér verkum. Við þökkum fráfarandi stjórnarmönnum fyrir gott samstarf og bjóðum nýtt fólk velkomið til starfa. Fundargerð aðalfundar mun verða aðgengileg á heimasíðunni innan tíðar.

Salómon Smári formaður nemendaráðs

Kosningu er lokið í nemendaráð Hvolsskóla. Nemendaráðið er þannig skipað: Salómon Smári Óskarsson formaður, Fanney Úlfarsdóttir varaformaður. Fulltrúi 10. bekkjar: Sigrún Ingunn Pálsdóttir, varamaður: Ástþór Hermannsson. Fulltrúi 9. bekkjar Eyþór Eiríksson, varamenn: Sindri Rúnarsson og Kári Benónýsson. Fulltrúi 8. bekkjar: Katrín Rúnarsdóttir, varamenn: Bjarki Hafberg Björgvinsson og Sabrína Lind Adolfsdóttir. Fulltrúi 7. bekkjar: Ragnar Þorri Vignisson, varamenn: Leifur Andri Óskarsson og Eyþór Guðlaugsson. Við óskum þeim öllum til hamingju með kosninguna.

 

Aðalfundur foreldrafélagsins

Aðalfundur foreldrafélagsins verður haldinn þriðjudaginn 29. september (á morgun) kl. 20.30 í sal skólans.

Bekkjartenglar eru sérstaklega hvattir til að mæta. Listi með bekkjartenglum má nálgast hér.

Með kveðju,
Stjórn Foreldrafélags Hvolsskóla

 

Haustþing kennara 24. og 25. sept

Fimmtudaginn 24. september lýkur skólastarfi kl. 13:00 vegna árlegs haustþings kennara. Starf samfellunnar fylgir skólanum og falla niður allar æfingar á vegum samfellunnar fimmtudaginn 24. sept nema skilaboð hafi borist um annað frá íþróttafélögunum. Aðeins verður einn heimakstur kl. 13:00 fimmtudaginn 24. sept. Lengda viðveran fylgir samfellunni og fellur þar með niður 24. september en Skjólið verður opið til kl. 17:00 á fimmtudaginn.

Föstudaginn 25. september er engin kennsla vegna haustþings kennara og Skjólið lokað.

 

Aðalfundur Foreldrafélags Hvolsskóla

Aðalfundur Foreldrafélags Hvolsskóla verður haldinn í sal skólans þriðjudaginn 29. september kl. 20:30.

Dagskrá:

1. Venjuleg aðalfundarstörf

2. Stjórnarkjör

3. Umræður um starfið í vetur


Heitt á könnunni

Mætum öll og tökum þátt í að gera starfið í vetur enn skemmtilegra.

P.s. bekkjartenglar eru sérstaklega hvattir til að mæta.

Stjórnin

Samræmd könnunarpróf

14. - 16. september munu nemendur 10. bekkjar þreyta samræmd könnunarpróf í íslensku, ensku og stærðfræði í þessari röð. Könnunarprófunum er ætlað að veita nemendum, foreldrum þeirra , kennurum og skólum upplýsingar um stöðu nemendanna í námi á þessum tímapunkti. Nemendur mæta í skólann á hefðbundnum tíma kl. 8:15. Skóladagurinn hefst með umsjónarstund á heimasvæðum en prófin byrja svo kl. 9:00 en lýkur kl. 12:00. Nokkrir nemendur hafa heimild til þess að vera lengur með prófin. Prófin fara fram á heimasvæði nemenda. Alla prófdagana fara nemendur 10. bekkjar heim að loknum hádegisverði, skólabílar aka akstursnemendum heim kl. 13:00.

17. og 18. september verða samræmd könnunarpróf lögð fyrir nemendur 4. og 7. bekkjar. Nemendur 7. bekkjar fara heim að loknu íslenskuprófi og hádegisverði fimmtudaginn 17. september.

 

Heimakstur og samfella

Frá og með mánudeginum 7. september nk. verða breytingar á heimakstri nemenda. Eftirleiðis verða ferðir sem hér segir:

Mánudagar: Kl. 14.30 og kl. 17.00
Þriðjudagar: Kl. 13.00 og kl.14.30
Miðvikudagar: Kl. 14.30 og kl. 17.00
Fimmtudagar: Kl. 14.30 og kl. 17.00
Föstudagar: Kl. 13.00 (ath. aðeins ein ferð)

Þennan sama dag, 7. september, fer samfellan af stað. Samfellan er á mánudögum, miðvikudögum og fimmtudögum í vetur. Skráningu í samfelluna lýkur föstudaginn 4. september.

Skólasetning Hvolsskóla

Hvolsskóli verður settur þann 25. ágúst 2009 sem hér segir.

Yngsta stig, nemendur 1. -3. bekkjar, mæta klukkan 9 í sal skólans.
Miðstig, nemendur 4.-6. bekkjar, mæta klukkan 11 í sal skólans.
Elsta stig, nemendur 7.-10. bekkjar, mæta klukkan 13 í sal skólans.


Hlökkum til að sjá ykkur!

 

Fræðslu- og menningarferð starfsfólks Hvolsskóla

Undirbúningur fyrir næsta skólaár hófst strax að loknum skólaslitum. Föstudagurinn 5. júní var sjálfsmatsdagur þar sem starfsmenn fóru yfir hvað gekk vel í vetur og hvað þarf að bæta. Fulltrúar foreldra þær Guðmunda Þorsteinsdóttir, Guðlaug Guðlaugsdóttir og Ásta Laufey Sigurðardóttir tóku þátt í deginum með okkur ásamt Ingvari Sigurgeirssyni ráðgjafa frá KHÍ. Hér eru myndir frá sjálfsmatsdeginum.

Dagana 8.-10. júní fór svo starfsfólk Hvolsskóla í vel heppnaða fræðslu- og menningarferð til Hafnar í Hornafirði. Markmið ferðarinnar var að kynna sér skólastarf og menningu á svæðinu. Dagskrá ferðarinnar bar yfirskriftina Samvinna skólastiga í dreifbýli og tengsl við menningu og atvinnulíf. Sótt var um styrki til ferðarinnar í Vonarsjóð KÍ og Fræðslusjóð FOSS. Myndir úr ferðinni má sjá hér.

Tilnefningar til foreldraverðlauna Heimilis og skóla

Ólafur Elí og skólayfirvöld í Rangárþing eystra voru tilnefnd til foreldraverðlauna Heimilis og skóla sem afhent voru í Þjóðmenningarhúsinu fimmtudaginn 4. júní síðastliðinn. Á myndinni eru þeir Ólafur Elí og Elvar Eyvindsson sveitarstjóri með viðurkenningarskjölin sem þeir fengu af þessu tilefni.

Hvolsskóla slitið

Skólaslit Hvolsskóla fóru fram í Íþróttamiðstöðinni miðvikudaginn 3. júní síðastliðinn. Að þessu sinni útskrifuðust 27 nemendur þar af 1 nemandi úr 9. bekk. Eins og undanfarin ár voru útskriftarnemendur í aðalhlutverki á hátíðardagskránni en að lokinni dagskrá í Íþróttamiðstöð fengu allir nemendur afhentar einkunnir í heimastofum og foreldrar nemenda 7. bekkjar seldu vöfflur og kaffi. Unnar Þór skólastjóri tilkynnti á skólaslitum að hann hefur ákveðið að hætta störfum sem skólastjóri Hvolsskóla. Hér eru myndir frá skólaslitunum.

Danmerkurferðin

Dagana 25.-28. maí sl. voru nemendur 10. bekkjar í Kaupmannahöfn. Þeir skoðuðu meðal annars Parken, Kristjaníu og Tívólí. Myndir frá ferðinni eru hér og hér. Ferðin tókst í alla staði frábærlega og þökkum við öllum þeim sem komu að undirbúningi ferðarinnar eða styrktu okkur til fararinnar.

Íþróttadagur og myndir úr vorferðum

Föstudaginn 29. maí verður íþróttadagur á elsta stigi. Þá munu nemendur spreyta sér í hinum ýmsu íþróttagreinum.

Myndir frá vorferðalagi nemenda á yngsta og elsta stigi eru komnar á Netið. Smellið til að skoða myndir frá ferð yngsta stigs í Landeyjarnar, frá ferð miðstigs inn í Krappa og gönguferð elsta stigs.

Vorferð yngsta stigs um Landeyjarnar

Þriðjudaginn 26. maí fór yngsta stigið í vorferðalag um Landeyjarnar. Ferðin heppnaðist mjög vel og voru bæði börn og fullorðnir hæstánægðir í lok dags. Byrjað var á að koma við á Bakkaflugvelli þar sem mjög vel var tekið á móti hópnum. Við fengum að fara upp í turn og skoða, okkur var sýnd flugvél og fengum að sjá og prófa hvernig takkar virka en einnig var brunabíllinn tekinn fram og vatnsdælan notuð vel.

Frá Bakkaflugvelli fórum við að Bergþórshvoli, á söguslóðir Njáls og annarra kappa úr Njálssögu. Þaðan var farið í Grandavör þar sem grillið beið okkar. Þar var líka tekið á móti hópnum sem þáði með þökkum að fara í nokkra leiki og skoða sig um í bátunum þar. Frá Grandavör lá leiðin að Vorsabæ þar sem móttökurnar voru einnig frábærar. Þar var okkur boðið í glæsilegt fjós og boðið var upp á ís. Kúnum var hleypt út í fyrsta skiptið þetta vorið á meðan við stoppuðum og vakti það mikla lukku.

Ferðina endaði hópurinn á því að fara að Affallinu og sulla hressilega. Flestir létu sér nægja að vaða en einhverjir tóku þó sundtökin í grunnu vatninu. Hópurinn var vel votur þegar heim kom en bros var á hverju andliti.

Við kunnum þeim sem tóku á móti okkur góðar þakkir fyrir hreint frábærar móttökur.

 

Vorferðir

Í gær voru nemendur yngsta stigs að ferðast um Landeyjarnar. Þeir skoðuðu Bakkaflugvöll, Bergþórhvol, fjósið á Vorsabæ og ýmislegt fleira.

Í dag (miðvikud. 27. maí) eru nemendur elsta stigs í gönguferð á Vatnsdalsfjalli. Gengið verður á Vatnsdalsfjallog þaðan niður í Krappa þar sem verður grillað. Lagt var af stað kl. 8.15 og komið aftur um kl. 13. Eftir hádegi taka nemendur þátt í að hreinsa umhverfið og lýkur skóladegi kl. 14.30. Nemendur þurfa að hafa með sér vatn á brúsa og skó til að vaða í. Nemendum er bent á að klæðast útivistarfatnaði samkvæmt veðri.

10. bekkur á leið til Kaupmannahafnar

Nemendur 10. bekkjar leggja upp í ferð til Kaupmannahafnar mánudaginn 25. maí. Fararstjórar í ferðinni eru Halldóra, Ingveldur og Ólafur Elí ásamt foreldrunum Björgvin Bjarnasyni og Pálu Buch. Ann-Sofie sem kenndi við Hvolsskóla í fyrra hefur aðstoðað okkur við skipulag ferðarinnar en hún býr nú í Kaupmannahöfn. Nemendur og foreldrar hafa safnað fyrir ferðinni með alls konar fjáröflunum og þökkum við þeim fjölmörgu sem þar hafa lagt hönd á plóginn. Dagskrá ferðarinnar er hér.

Aðalfundur FÁS í Hvolsskóla

Aðalfundur Foreldrasamtaka á Suðurlandi, FÁS, verður haldinn í Hvolsskóla, 3. júní kl. 20:30.

Vorhátíð í sumarblíðu

Þemadögum með áherslu á útivist og hreyfingu lauk með glæsilegri vorhátíð föstudaginn 15. maí. Fjöldi fólks heimsótti Hvolsskóla og tók þátt í hátíðinni og veðurguðirnir skörtuðu sínu fegursta. Gleði og ánægja ríkti á staðnum eins og sjá má á þessum myndum frá hátíðinni og þessum frá þemadögunum. Við þökkum öllum þeim sem lögðu hönd á plóginn á hátíðinni og við undirbúning hennar.

Þemavika í fullum gangi

Þessa dagana eru nemendur og starfsmenn á ferð og flugi um skólann og nágrenni hans. Nemendur eru að vinna í 10 aldursblönduðum hópum sem allir fást við þemað útivist og hreyfing. Hóparnir nálgast viðfangsefnið á mismunandi hátt og kennir margra grasa. Nemendur fara í hjólaferðir, gönguferðir og sumir synda. Hóparnir grilla og elda hér og þar um svæðið. Einn hópurinn hefur verið í tjaldútilegu alla þemadagana og tveir hópar eru að smíða kofa. Í dag fimmtudag eru flugdrekar að fara á loft, vindmyllur sem nemendur hafa búið til snúast hér og þar og ýmiss konar handverk lítur dagsins ljós.
Allt þetta verður svo til sýnis á vorhátíðinni okkar á morgun föstudaginn 15. maí. Hátíðin hefst í íþróttahúsinu kl. 16:00 með tónlistarflutningi þeirra Fanneyjar Úlfarsdóttur og Sigurðar Borgars Ólafssonar. Bókaverðlaun barnanna 2009 verða afhent og dagskránni í íþróttahúsinu lýkur með danssýningu. En danskennararnir Jón Pétur og Kara hafa kennt öllum nemendum dans nú í vikunni.
Foreldrafélagið býður upp á andlitsmálun, auk þess verður félagið með kaffisölu í salnum og selur grillaðar pylsur og drykki á skólalóðinni.

Vel heppnaðir forskólatónleikar

Nemendur 2. 3. og 4. bekkjar buðu foreldrum sínum, kennurum og nemendum 1. bekkjar á tónleika föstudaginn 8. maí. Á tónleikunum spiluðu nemendur lög sem þeir hafa verið að æfa í vetur og greinilegt að þar hefur ekki verið slegið slöku við, tónleikarnir voru mjög skemmtilegir. Myndir frá tónleikunum eru hér og hér eru nokkrar myndir af yngsta stiginu sem ekki hafa birst fyrr á síðunni.

9. bekkur í Þórsmörk

Nemendur 9. bekkjar gistu í Húsadal í Þórsmörk frá fimmtudegi til föstudags. Nemendur skoðuðu Stakkholtsgjá, gengu á Valahnjúk grilluðu og gerðu sér glaðan dag. Fararstjórar í ferðinni voru þau Jórunn, Ólafur Elí og Arnheiður. Á myndunum úr ferðinni má sjá að allir skemmtu sér konunglega.

10. bekkingar syntu 118 km

Nemendur 10. bekkjar syntu í sólarhring frá hádegi fimmtudaginn 7. maí til hádegis föstudaginn 8. maí. Sundið tókst mjög vel og syntu nemendur samtals 118 km. Foreldrar stóðu vaktina með nemendum og sáu um að allt færi vel fram. Hér eru nokkrar myndir sem teknar voru við laugina.

 

 

Kennsluáætlanir vorannar

Stundatafla samfellunnar

Hið árlega fréttabréf Foreldrafélagsins hér.

Bekkjartenglar foreldrafélagsins 2008 - 2009


Með kveðju frá Hvolsskóla

 

 

Úrslit í BEST og Skólahreysti

Menntamálaráðherra heimsækir Hvolsskóla

Kennaranemar frá Kanada í Hvolsskóla

Árshátíð 7. - 10. bekkjar

Guðmunda og Guðlaug fulltrúar foreldra í skólaráði

Foreldrar ánægðir með skólastarfið

Leikhúsferð

Tónlist fyrir alla

Sigur í Skólahlaupi HSK

Stóra Upplestrarkeppnin

Heimsóknir og gjafir

Heimsókn forsetahjónanna

Þjóðlegur fróðleikur á árshátíð miðstigs

Nemendur 7. bekkjar fengu ávaxtakörfu í lýðheilsuátaki

Fréttabréf 19. feb

Albert fljótastur að reikna

Glæsileg ræðu- og söngkeppni

Frábær árangur í glímu

9. bekkur í undanúrslit í BEST

Skólablaðið Hvellur


2008

Íslensku menntaverðlaunin afhent

Auglýsing um Íslensku menntaverðlaunin 2009

Hornafjörður heimsóttur

Skólaslit

Íþróttadagur á elsta stigi

10.b. í Kaupmannahöfn

Meira frá Kaupmannahöfn

Miðstigið nýtur góða veðursins í útistofunni

Miðstig í Krappanum

Gengið á Vatnsdalsfjall

Landeyjaferð yngsta stigs

Vorhátíð Hvolsskóla

Útivist og hreyfing í Hvolsskóla

Forskólatónleikar

Þórsmerkurferð

Áheitasund 10. bekkjar

Heimsókn 4. bekkjar í Alviðru

Heimsókn 7. bekkjar í Alviðru

Úrslitakeppnin í skólahreysti

Myndir af yngsta stigi

Myndir af miðstiginu

Úrslitakeppni BEST

Heimsókn menntamálaráðherra í Hvolsskóla

Glæsileg á árshátíð - ljósmyndari Þorgeir Sigurðsson

Árshátíð 7. - 10. bekkjar

Leikhúsferð

Stærðfræðin og umhverfið

Náttúrufræðiþema á miðstigi

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar

Krikket

Undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar

Skólabúðir

Skíðaferð 5. og 6. bekkjar

Fundur í skólaráði og gestir í heimsókn

Áhugasviðsverkefni kynnt á miðstigi

Skíðaferð 9. og 10. bekkjar

Baðstofuhátíð miðstigs

Dagur sjónskertra

Undirbúningur baðstofuhátíðar

Heimsókn forsetahjónanna á námssvæðin

Forsetahjónin í Hvolsskóla

Dagur stærðfræðinnar

Ræðukeppnin á Laugalandi

Ræðukeppni Hvolsskóla

Foreldradagur

Gettu betur

Jólagleði mið og yngsta stigs

Jólamatur og sparifatadagur

Föndrað og spilað á yngsta stigi

Jólaundirbúningur á miðstigi

Jólatónleikar

Stemning í desember

Sleðaferð á miðstigi

Þematískan í algleymingi

Myndlist á yngsta stigi

Listasamvinna

Matreitt inni og matreitt úti

 

 

Fleiri myndir úr skólastarfinu í vetur eru í myndabankanum

- Smellið á takkana til að skoða fréttir eða myndir -

 

 

Síðast uppfært: 02.10.2009

Vefstjórar: Halldóra Magnúsdóttir og Katrín M. Eiríksdóttir
Hvolsskóli s. 488 4240 Fax: 488 4259